×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

Black Friday Up to 50% off
image

Föðurlaus sonur níu mæðra, Af lágskýi sem gekk með barn eða folald

Af lágskýi sem gekk með barn eða folald

Sjaldgæfur atburður átti sér síðar stað í samlífi þeirra Seifs og Heru, en hann var sjálfur afbrýðissamari en andskotinn, eins og fjölþreifnir menn oft eru. Hann fékk pata af að smákóngur að nafni Ixíon væri að stíga í vænginn við Heru sína. Hann vildi láta á það reyna hvort þetta væri satt og útbjó nú venjulegan lágskýjabólstur þannig að hann tók á sig fullkomna mynd og litaraft Heru og var það mikil völundarsmíði. Seifur lagðist svo á gægjur og ekki leið á löngu áður en Ixíon lagði lag sitt við skýið og tók að riðlast á því í góðri trú að það væri Hera. Seifur var ekki nógu handfljótur að fyrirkoma þessum skýjaníðingi áður en hann náði að barna skýið, en þau urðu endalok Ixíons að hann var spenntur á logandi steglu niðri í undirheimum. Um þau málagjöld orti Eggert Ólafsson:

Svo að til Heljar hrapa réð.

hart er bundinn við kvernhjólið:

hans græsku geð

sefast þar og þokast með;

vel var það skeð.

Með samlagi þessu var vissulega reynt á ítrustu þanmörk erfðafræðinnar, en skemmst er frá að segja að skýjabólsturinn sveif ekki einsamall af þessum fundi. Heimildir greina ekki frá lengd meðgöngunnar en að henni lokinni bar skýið skepnu, sem var maður niður að mitti en hestur að neðanverðu og fjórfættur. Skepnur þessar kölluðu Grikkir kentára en við mannfáka eða hestamenn. Þessi tegund er ein fjölmargra sem týnst hefur úr þróunarsögunni, en mikill fengur væri að mannfákum til dæmis á kappreiðum, þar sem sekúndur og grömm ráða sigri og ósigri, því það gefur augaleið að á svona kappreiðahesti þyrfti ekki að íþyngja með knapa.

Pretor-Pinney, G.: The Cloudspotter´s Guide. Sceptre. London. 2007

Kvæði Eggerts Ólafssonar. Prentuð hjá S.L. Möller. Kaupmannahöfn 1832. S. 65

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE