×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

Föðurlaus sonur níu mæðra, 1. ÁSTIN - Hér eru ástir grófflo… – Text to read

Föðurlaus sonur níu mæðra, 1. ÁSTIN - Hér eru ástir grófflokkaðar til skilningsauka

Advanced 2 Icelandic lesson to practice reading

Start learning this lesson now

1. ÁSTIN - Hér eru ástir grófflokkaðar til skilningsauka

Þegar Drottinn hafði skapað lífríkið skildi hann við það nánast í óskiljanlegu ástandi. Það var ómögulegt að átta sig á hvað var fugl og hvað fiskur, hvað var ætt og hvað óætt, þangað til sænskur röð-og-reglu-fíkill sem hét Karl Linné, flokkaði það niður í fylkingar, deildir, ættir og undirflokka, gaf öllu þessu latnesk nöfn og gerði lífríkið sæmilega skiljanlegt. Síðan vitum við að ætli maður að skilja fyrirbæri, eins og t.d. ástina, ríður mest á að grófflokka það og skipa því niður í undirflokka.

Nú hefur Ólafur Haukur Símonarson sýnt fram á að ást fer alltaf fram í tíma, þó sá tími geti verið afar mismunandi langur:

Til eru ástarævintýri svo stutt að varla tekur því að byrja á þeim.

Líka eru til ástarævintýi svo löng að enginn fæst til að taka þátt í þeim.

Af sjálfu leiðir að ást er alltaf um leið ástarsaga. Þýðingarmestu undirflokkar ásta og ástarsagna eru þrír, og einn undirundirflokkur að auki:

a) ástir sem enda illa,

b) ástir sem enda vel,

b1.) ástir sem byrja illa en enda vel

c) ástir sem maður veit ekki almennilega hvernig enda.

Betra fólki hefur ávallt þótt ástarsögur sem enda illa bæði fallegri og frásagnarverðari en þær sem enda vel, en það er helst almúginn sem hefur unun af sögum um þannig ástir. Bráðvel gefið og heimskt fólk á það hins vegar sameiginlegt að hafa gaman af ástarsögum sem það veit ekki hvort enda vel eða illa.

Ólafur Haukur Símonarson: Æskuljóð hvíta mannsins. Skrudda. Reykjavík. 2003

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE