×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

image

Með skör járntjaldsins, 88. Heilagleiki og illska

88. Heilagleiki og illska

Þegar við bjuggumst til brottfarar frá Belgrad var komin rigning. Í fyrstu voru droparnir strjálir en bersýnilega voru nægar vatnsbirgðir í skýjunum. Síðasti viðkomustaður okkar í borginni var Vracar-hæð. Þar hafði Slobodan Milosevic látið reisa kirkju heilags Sava og hún átti að vera stærsta rétttrúnaðarkirkja heims. Milosevic fór frá hálfnuðu verki og kirkjan var marmaraskurnin ein og galtóm innan. Nú sást það víst aldrei til Milosevic að hann væri sérlega kirkjurækinn maður, en í heilögum Sava fann hann tilvalinn dráttarklár fyrir þjóðernisstefnu sína. Heilagur Sava var uppi á tólftu öld. Hann var fyrsti erkibiskup Serba, lagði grundvöll að landslögunum og ritaði bækur. Kært var með honum og Guði. Sava átti Stefán II Serbíukonung fyrir bróður. Þegar Stefán lá banaleguna lét hann ná í Sava til að taka af sér munkaheit áður en hann skildi við, því hann hafði frétt að á himnum væru framavonir munka jafnvel ennþá betri en kónga. Sava átti um langan veg að fara og þegar hann loksins mætti var Stefán þegar dauður. Það skipti engu, því fyrir orð Sava leyfði Guð Stefáni að rísa á fætur og taka standandi við vígslunni. Að því búnu var hann jafn dauður sem fyrr. Þegar Sava sjálfur hvarf úr jarðlífinu lá hann í þrjú hundruð ár órotnaður í gröf sinni og um nágrennið barst sætur ilmur af líkinu. Þegar Tyrkir hernámu Serbíu tóku þeir eftir að ilmur þessi blés Serbum uppreisnaranda í brjóst. Því var það að tyrkneski landstjórinn ákvað að brenna líkið í eitt skipti fyrir öll. Brennan átti sér stað á Vracar-hæðinni en Sava gerði það ekki endasleppt, því jafnskjótt og logi var borinn að líkinu gaus upp mikill eldstólpi sem víða sást að úr Serbíu. Titó lést árið 1980 og rassfarið hans í pólitíkinni var enn ófyllt þegar Slobodan Milosevic varð forseti 1989. Hann tók vissulega við erfiðu búi en gerði illt enn verra. Efnahagur Júgóslava var í rústum og júgóslavneski dínarinn hrundi niður úr öllu valdi. Ríkjasambandið sem Titó hafði haldið saman með handafli var að liðast í sundur. Við þessar aðstæður kaus Milosevic að leiða huga Serba að gamalli gremju út í granna sína og blása í glæður þrálátra hugmynda þeirra um serbneskt stórveldi á Balkanskaganum. Það var venja hans að hefja stríð þegar vandi var á höndum ríkisstjórnarinnar, en hann hafði eins og fleiri þjóðhöfðingjar veitt því eftirtekt hve stríðsrekstur dregur athygli þjóða frá smámunum sem betur mega fara. Fjórum sinnum hóf hann stríð og fjórum sinnum tapaði hann stríðum áður en honum var sparkað af valdastóli árið 2000. Illska er ekki algeng. Ég hef það einmitt eftir manni frá Belgrad að í venjulegu ári sé bara einn maður af hverjum hundrað illmenni og þegar verst láti fjölgi þeim í fimm. Það er erfitt að komast hjá þeirri skoðun að Milosevic-hjónin hafi tilheyrt þessum fimm prósentum og verið jafn ill og þau voru siðblind. Nú byrjuðu þau bæði sem efnilegir kúristar í litlum bæ austan við Belgrad en með hörmungasögu að baki. Foreldrar Slobodans styttu sér aldur. Faðir Miru týndist í stríðinu en móðir hennar var tekin af lífi. Framan af potaðist Slobodan Milosevic upp eftir valdastiga Kommúnistaflokksins með undirferli og klækjum, þangað til hann að lokum stóð einn í efstu riminni, orðinn forseti árið 1989. Þau voru samhent Slobodan og Mira; hann í forsætum, hún bak við tjöldin. Hafi þau lagt upp með einhverja aðra hugsjón, var þegar á leið varla annað eftir af henni en eigin dýrð og þau virtust tilbúin að kosta öllu til hennar vegna og ryðja hverju því úr vegi sem skyggði á hana. Stefnan var öfgafull og þjóðernissinnuð. Milosevic afnam heimastjórn Albana í Kosovó sem Titó hafði veitt þeim árið 1974. Hann krafðist þess að serbnesku landamærin færðust út, þannig að þau næðu einnig yfir þessar tvær milljónir Serba, sem voru heimilisfastir í Bosníu og Króatíu. Serbar létu sefjast og fóru í stríð við nágranna sína sem bæði þeim og öðrum veitist eftir á örðugt að skilja og skýra.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE