×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

Black Friday (extended) Up to 50% off
Sign Up Free
image

Með skör járntjaldsins, 58. Nútíminn og Somrok-fjölskyldan

58. Nútíminn og Somrok-fjölskyldan

Undir kvöld á páskadag fór sólin að skína, hregg og hríðar voru gleymd og framundan reis risastórt glitrandi egg upp úr sjóndeildarhringnum. Ekki hvarflaði að mér að það væri páskaegg, því ég vissi að þetta var hvolfþak dómkirkjunnar í Esztergom. Hún er Ungverjalandsmegin landamæranna og eftir klukkutíma ferð um slétt land stóð ég á bakka Dónár andspænis kirkjunni og hafði Slóvakíu að baki. Í vösum mínum átti ég slóvakíska seðla og ákvað að gista í Stúrovo til að eyða þeim. Það sat í mér að í sumarleyfi fyrir tuttugu árum hafði ég skipt meiru fé í Ungverjalandi en ég komst yfir að eyða áður en ég fór yfir landamærin til Júgóslavíu. Eftir var upphæð sem heima hefði mátt fá fyrir einn eða tvo bensíntanka á bíl. Á þeim árum var harðbannað að flytja ungverska mynt úr landi, svo fjölskyldan ákvað að fresta áframhaldandi ferðalagi þangað til féð væri uppurið. Það tók heila helgi á úrvalshóteli við Balaton-vatn með for-, aðal- og eftirréttum í hvert mál, Tokaj-víni og sígaunahljómsveit sem sinnti fjölskyldunni sérstaklega með fiðluleik undir borðum. Nú voru aðrir tímar en ég tók enga áhættu og keypti gistingu og kvöldmat Slóvakíumegin hjá Somrok-fjölskyldunni. Marjoz og Edit voru í heimsókn. Marjoz seldi forsmíðaðar steinsteypueiningar og af því Somrok-hjónin voru einlægt að auka einu og einu herbergi við gistirýmið úr einmitt þessum einingum hafði tekist með þeim tengsl sem að hálfu voru verslun og að hálfu vinátta. Fyrr en varði var ég orðinn málhaltur hluttakandi í veislu með feitum pylsum og sveitavíni sem Margrét Somrok bar í mig, Gratis, yes! sagði hún. Sumar konur er þannig vaxnar að þeim verður ekki neitað beri þær fram feitar pylsur. Marjoz var mikill áhugamaður um marketing, allt var komið undir marketing, sagði hann, forsmíðaðar steinsteypueiningar voru framtíðin. Rökfesta hans óx með hverju vínglasi. Það var aðeins hin velviljaða forsjón, sú sama og forðum leiddi Ódysseif heim til Íþöku um síðir, sem forðaði mér frá því að kaupa af honum slatta af slíkum einingum. Þetta var fólk á hægri en öruggri uppleið á nýjum tímum og nú draup smjör af stráum. Þegar Slóvakía fékk sjálfstæði í ársbyrjun 1993 var það alveg ný reynsla. Aðrir höfðu ráðskast með landið frá því á tíundu öld og það var bara fyrir einhverja þrjósku sem Slóvakar höfðu haldið í endurminninguna um að þeir væru sérstök þjóð. Í Evrópuendurskoðuninni miklu eftir fyrra stríðið voru þeir spyrtir saman við Tékka í landi sem aldrei áður hafði verið til. Þeir voru ekki hamingjusamir í þeirri sambúð og þeim fannst þeir standa í skugga þessara frænda sinna. Tékkum þótti fyrir sitt leyti að Slóvakar væru afdalamenn. Það var því Slóvökum að meinalausu þegar þeir skildu við Tékka. Raunar voru þjóðirnar ekki spurðar, heldur sömdu leiðtogarnir Vaclav Klaus og Vladimir Meciar um skilnaðinn sín í milli, báðir jafn fegnir að losna við hinn. Eftir að Kommúnistaflokkurinn missti tökin árið1989 fóru Slóvakar út um víðan völl í pólitíkinni og árið 1996 höfðu þeir stofnað fjörutíu og þrjá flokka í stað eins áður. Sagt er að hittist þrír Slóvakar yfir bjór stofni þeir stjórnmálaflokk á þriðja glasi. Kraumandi þjóðerniskenndir, 20 til 30% atvinnuleysi og óvissa um alla hluti fleyttu kjaftagleiðum náungum til metorða og stundum forystu í austantjaldslöndunum eftir hrun kommúnismans. Það var fyrrverandi þungaviktarboxari, Meciar, sem náði undirtökum í Slóvakíu og í landsstjórninni studdist hann einkum við keppnisreynslu sína; kjaftshögg, föst og þung. Evrópa horfði skelfd á hann færa landið út á blábrún einræðis. Öllum létti þegar hann tapaði í kosningum árið 1998. Svo ákaflega sem vesturveldin vildu fá Slóvaka í sitt lið, þá höfðu einræðistilburðir Meciar gengið fram af þeim og þau höfnuðu umsókn Slóvakíu um aðild að NATO árið 1997. Seinna skiptu þau um skoðun. Þegar Slóvakíu var veitt innganga í Evrópusambandið árið 2004 var aðeins kurteislega mælst til þess að dregið yrði úr spillingu í stjórnkerfinu og skár komið fram við minnihlutahópana í landinu; einkum sígauna og Ungverja.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE