×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

image

Með skör járntjaldsins, 47. Frávik á borgarskjalasafni

47. Frávik á borgarskjalasafni

Það var komið fram undir lok maímánuðar ársins 2003. Upptök Vislu voru fundin og ég gerði tíu mánaða langt hlé á ferðinni. Ég var staðráðinn í að koma aftur og halda áfram suður og austur til Istanbúl. Það var mesti óþarfi að ómaka hjólið og kerruna heim til Íslands. Ég hélt þess vegna til ráðhúss Krakár og fór þess á leit við fulltrúa borgarstjóra sem ég hitti að borgin hýsti hvort tveggja fyrir mig veturlangt. Til frekari áherslu dró ég fram bréf það frá Laskowski sem sýndi svart á hvítu heimslegt mikilvægi mitt. Það kom velviljað fát á fulltrúann. Fordæmi eru afar mikilvæg í opinberri stjórnsýslu og fordæmaleysi skapar ævinlega óöryggi. Mörgum torleystum erindum hafði verið beint til Krakárborgar á umliðnum öldum en líklega hafði hún aldrei áður verið beðin fyrir reiðhjól. Virðing borgarinnar út á við var slík, að tæki hún á annað borð að sér að geyma hjól varð það að vera með fullum sóma. Málið þurfti að bera undir ýmis embætti og ég horfði á eftir erindi mínu upp eftir kerfinu; átti stutt samtal við menningarmálastjórann sem einkenndist af að hvorugur skildi hinn, tók í höndina á skrifstofustjóra, spjallaði við einhvern sem gat verið borgarritari og gaf mér kaffi. Það var áhyggjusvipur á öllu þessu fólki en einnig góðfús einurð; þau vildu verða við bón minni, spurningin var aðeins hvernig. Ég var beðinn að koma á ný í ráðhúsið daginn eftir. Þá hafði verið tekin sú ákvörðun að vista hjól og kerru á skjalasafni borgarinnar, því þrátt fyrir þann eðlismun sem öllum var ljós á farartæki og skjali, þá var safnið þurrt, þokkalegt og öruggt. Ljóshærður en lágt settur engill, Magdalena að nafni, fylgdi mér, hjólinu og kerrunni í Borgarskjalasafnið á jarðhæð þessa ákaflega virðulega húss. Þar voru fyrir ábyrgðarmiklir og eftirvæntingarfullir skjalaverðir sem þegar höfðu tekið málið fyrir á morgunfundi. Þeir leiddu hjólið og kerruna á bás sem þeir höfðu undirbúið til hliðar við gamla kladda og virðulegar möppur með lóðasamningum, skipulagsuppdráttum og leyfisbréfum. Ég vonaði að hjólið læki engri smurningsolíu á þessi gögn og kvaddi það og skjalaverðina með innileik.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE