×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

Sign Up Free
image

Með skör járntjaldsins, 46. Hefðarfrú með hreysikött

46. Hefðarfrú með hreysikött

Ég fór að heimsækja dömuna með hreysiköttinn í Czartoryski-safninu. Hún, sem núorðið fer sjaldan að heiman, hafði þá verið á ferðalagi í Texas og treysti sér ekki til að hitta neinn. Ég hafði hitt hana í Kraká fjórum árum fyrr, setið lengi hjá henni og dáðst að henni. Ég held að Pólverjar séu ekki montnari af neinni annarri mynd, enda er hún gerð af Leonardo da Vinci. Í sama safni varðveita þeir ágæta landslagsmynd eftir Rembrandt en hún er eins og hvert annað aukaatriði hjá dömunni. Daman nær ekki frægð sinni og áhrifum með ágengni, heldur þvert á móti með því að sinna manni alls ekki neitt og vera einmitt að hugsa um eitthvað allt annað en aðdáendur sína. Hún situr á miðri mynd og horfir á eitthvað vinstra megin við sig utan rammans. Hún er samt ekki að horfa á það af neinum áhuga heldur dvelur í hugarheimi sínum. Hún heldur á hreysiketti. Um hálsinn er löng festi úr dökkum perlum og sagt er að þær séu úr rafi. Hárið er þunnt og bundið þétt niður með slæðu. Listfræðingurinn Zygulski hefur fært fyrir því óyggjandi rök, að þessi hártíska hafi á sínum tíma komið frá Spáni og heiti el tranzado. Fyrirsætan, Cecilia Gallerani, var annars hirðmey við Mílanó-hirðina og myndina gerði Leonardo líklega á bilinu 1482–1485. Þá var hún sextán ára en samt orðin ástkona höfðingjans Lodovicos Moro. Hún ól honum síðar tvo syni í meinum og hann gaf henni höll fyrir vikið. Seinna gaf hann vini sínum hana sjálfa til eiginorðs, enda þurfti hann af fjárhagslegum og pólitískum ástæðum sjálfur að kvænast annarri konu. Það er ekki margt annað vitað um Ceciliu en þetta. Hún skilur eiginlega ekkert eftir sig nema svip sinn á þessari mynd. Samt er það höndin sem fyrst fangar athygli manns. Hún hvílir á hreysikettinum og var rétt áðan að gæla við hann með þessum allt að því óeðlilega löngu og mjóu fingrum. Þessi hönd þykir mikil listræn gersemi og glöggir menn segja að enginn hefði getað gert hana annar en Leonardo da Vinci. Það er hins vegar minna látið með hina höndina sem hverfur í skugga undir hreysikettinum og þykir léleg. Þessir sömu glöggu menn segja að meistarinn hafi látið lærlinga sína klára hana. Ég er ekki frá því að óvanir hafi líka komið að því að gera vinstri öxlina, sem er svo afslepp að Cecilia hefði til dæmis varla getað borið axlatösku þeim megin. Táknfróðir menn hafa mikið velt því fyrir sér hvaða erindi hreysikötturinn eigi á þessari mynd. Hann þykir illa innrætt kvikindi, styggt og ljótt, sjaldgæft á málverkum og óáreiðanlegt tákn sem getur bæði vísað til hreinleika og siðleysis. Izabela Czartoryska, furstynja, sem fékk þessa mynd að gjöf frá syni sínum Adam, punktaði hjá sér: „Skepnunni sem hún heldur á er erfitt að lýsa. Hún er of ljót til að vera hundur en sé það eitthvert annað kvikindi, þá þekki ég það ekki.“ Mynd þessi var lengi týnd. Adam Czartoryski keypti hana á Ítalíu um aldamótin 1800. Þrjátíu árum seinna varð hann að flýja með hana til Parísar en hún kom aftur til Póllands. Þjóðverjar stálu henni og fyrirhugað var að koma henni fyrir í safni úrvalslistar sem Hitler vildi setja á fót í Austurríki en ekkert varð úr því. Ég hefði feginn viljað hitta hana aftur en úr því gat ekki orðið. Augljóst er að konur af hennar tagi þurfa að hvíla sig vel og hafa hægt um sig eftir að hafa ferðast alla leið frá Texas.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE