×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

image

Með skör járntjaldsins, 37. Dagur heilags Stanislaws

37. Dagur heilags Stanislaws

Það var áttundi maí þegar ég hjólaði út úr Sandomierz og yfir Vislu í ellefta sinn suður og vestur til bæjarins Mielec. Þetta var dagur heilags Stanislaws, þjóðardýrlings Póllands. Þennan dag fyrir 924 árum var hann drepinn. Þá var Boleslaw djarfi konungur en Stanislaw var biskup í Kraká. Ein sagan segir að Stanislaw hafi ofboðið lauslæti og siðleysi kóngsins og skammað hann fyrir það úr stólnum. Samkvæmt annarri sögu vildi Boleslaw þrengja kost kirkjunnar og biskup andæfði með því að bannsyngja kónginn. Þriðja sagan segir að Stanislaw hafi verið í forystu fyrir samsæri gegn Boleslaw. Hver sem ástæðan var elduðu þeir grátt silfur saman, kóngur og biskup. Boleslaw hélt sig hafa náð undirtökum þegar grunur féll á biskup fyrir fjársvik og eina vitnið sem hefði getað hreinsað hann, heiðursmaður að nafni Piotrowin, var nýdáið. Minni manni en Stanislaw hefði fallið allur ketill í eld í þessari aðstöðu en hann gekk sig út í kirkjugarð og skipaði Piotrowin að koma upp úr gröfinni og skreppa með sér til dómara til að bera vitni. Þessu hlýðnaðist Piotrowin sálugi og konungi var ekki skemmt. Þar kom að Boleslaw þraut biðlund og lét höggva, eða hjó sjálfur, Stanislaw til dauðs þar sem hann stóð fyrir altari Pálskirkjunnar í Kraká. Svo var Boleslaw orðinn ergilegur að hann fyrirskipaði að líkið væri dregið út fyrir kirkjuna, hlutað í sundur og því fleygt í tjörn svo fiskarnir þar mættu éta það. Öllu þessu var hlýtt, en áður en fiskarnir í tjörninni gátu hafið máltíðina komu fjórir fannhvítir ernir fljúgandi af himni ofan, tóku líkamsparta biskupsins í klærnar og röðuðu þeim saman á nýjan leik. Boleslaw varð eðlilega mjög hugsandi yfir þessu og lét nú óátalið að guðhrætt fólk jarðsetti biskupinn sinn með venjulegum virktum. En vegna þessa verknaðar var Boleslaw sviptur konungstign, rekinn frá Póllandi og átti ill ævilok. Stanislaw naut hins vegar hálfu meiri virðingar dauður en lifandi. Vatnið í tjörninni þar sem hann hafði stundarkorn legið í mannspörtum reyndist upp frá þessu geta bætt alla sjúkdóma og margir fengu bót meina sinna með því. Illu heilli var það uppurið og botninn skraufþurr þegar ég vitjaði Pálskirkjunnar nokkru síðar.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE