×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

Black Friday Up to 50% off
image

Með skör járntjaldsins, 27. Fæðingartangir, hænuegg og ritsafn Gogols

27. Fæðingartangir, hænuegg og ritsafn Gogols

Alþjóðavæðingin er yfirleitt loftkennt hugtak en hún líkamnaðist fyrir augum mér á feiknastórum íþróttaleikvangi sem er á austurbakka Vislu, andspænis miðbænum í Varsjá. Þar eru upphækkandi bekkjaraðir fyrir hundruð þúsunda áhorfenda hringinn í kringum íþróttavöll, en þetta mannvirki er ekki lengur notað undir kappleiki heldur gríðarmikinn, fjölþjóðlegan basar. Bak við söluborðin, á þeim, framan við þau, í loftinu, hljóðbylgjunum, litunum og lyktinni stígur alþjóðavæðingin út úr teoríunni og myndgerist í gulu, hvítu, svörtu eða brúnu fólki sem sumt er komið austan úr Víetnam, annað sunnan úr Nígeríu, flest samt með hrörlegum rútum austan úr Hvíta-Rússlandi, Úkraínu eða Litháen. Loks koma sumir úr nærsveitunum sunnan borgarinnar, en markmið allra er að versla og skemmta sér. Flest er þetta fólk kátt, hávaðasamt og svolítið rustalegt en inn á milli eru visnar gamlar konur í svörtu, horaðir bændur, ræfilsleg börn. Þarna eru í boði sígarettukarton, sum ekta en flest undir fölskum merkjum, brjóstahöld frá A-skálum og upp í G, rússneskir herbúningar, nýjasta poppið í ræningjaútgáfum, heimabruggað vodka, brún og hvít hænuegg. Einhver hafði rænt gamla skurðstofu og seldi notuð hnífasett, fæðingar- og sáratangir, annar hafði komið höndum yfir lager af tannlækningatólum, þriðji seldi hrísgrjón, fjórði klámblöð, fimmti ritsafn Gogols. Það var mikið framboð á lítið notuðum fötum; pínubrókum, pelsum og pils sá ég sem var svo vítt í mittið að maður skynjaði óhjákvæmilega sorgarsögu eigandans. Þarna voru ódýr topplyklasett, handspeglar með mynd af Madonnu á bakhliðinni, heimatilbúnar karamellur, nýtínd blóm, leðurbelti, afrískar grímur, kúlur með Ægisif innan í og þegar maður hristi þær sáldraðist snjór niður yfir kirkjuna. Þetta er frægasti útimarkaðurinn í Austur-Evrópu og Varsjárbúum sárnar að flest aðkomufólk vill miklu frekar fara á þennan basar heldur en skoða nýuppgerða konungshöllina. Ég gerði hvort tveggja og höllin skíttapar í samanburðinum. Ég kreppti fingurna utan um budduna í buxnavasanum og lét þvöguna bera mig milli borðanna, hafnaði heimagerðu hunangi, heiðursmerkjum, hnífum með 30 cm löngu blaði, svitalyktareyði og tilboði um snöggan drátt bak við tjaldvegg fyrir gjafverð. Sumt fólk hafði komið langan veg með lítinn varning og mann rak í rogastans yfir þeirri örbirgð eða nægjusemi að hanga yfir því daglangt að selja tólf egg, tvær krukkur af hunangi eða pott af heimabruggi. Þau hittust því þarna á leikvanginum sjálfsþurftarbúskapurinn gamli og alþjóðavæðingin nýja, bláfátæktin og fátæktin, því þarna virtist enginn vera ríkur, hvorki seljendur né kaupendur.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE