Stelpur vil ég stórar
Þær eru allar fallegar í framan,
og þig fýsir í að strjúka þeirra kinn,
og fyrr eða seinna muntu finna
að fjörugar þær eru vinur minn.
Og stelpur vil ég stórar,
já stelpur vil ég stórar.
Stelpur vil ég stórar,
því stráka þannig eru órar.
Já - saman skulu vera stelpa og strákur,
þótt stundum segi annað þeirra nei.
Svo trúðu þeirra ljúfu ástarorðum,
og elska skaltu hverja góða mey.
Og stelpur vil ég stórar,
já stelpur vil ég stórar.
Stelpur vil ég stórar,
því stráka þannig eru órar.
Já, augun þeirra alltaf eru falleg
og allra kvenna frítt er sköpulag,
og þokkinn góði býr í þeirra brjóstum.
Þær bjarga þér frá leiðindum hvern dag.
Og stelpur vil ég stórar,
já stelpur vil ég stórar.
Stelpur vil ég stórar,
því stráka þannig eru órar.
Ef kunna þær að stækka á réttum stöðum
má stanslaust velja nettar, viljugar,
ef þær í vídd og breidd æ stoltar standa
og stríð gegn megrunum heyja ólmar.
Og stelpur vil ég stórar,
já stelpur vil ég stórar.
Stelpur vil ég stórar,
því stráka þannig eru órar.