×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

New Year Sale - Extended Week Up to 50% off
image

Njóttu ferðalagsins, Guðjón Svansson, 8 - Sinntu áhugamálunum

8 - Sinntu áhugamálunum

Góður pabbi er áhugasamur. Hugsanlega hefur þú minni tíma í áhugamálin þegar þú ert orðinn pabbi, hugsanlega þarftu að finna nýjar tímabundnar nálganir á meðan mest þörf er fyrir þig á heimilinu. En þú mátt ekki gefa allt upp á bátinn, ekki festast í vinna/sofa/borða/sjá um fjölskylduna/ ekkert annað gírnum. Áhugamál eru smitandi og það hefur jákvæð áhrif á börnin þín að fylgjast með þér rækta eitthvað sem þú hefur mikinn áhuga og veitir þér gleði. Fyrir þig er sömuleiðis nauðsynlegt að kúpla frá daglegum skyldum og hlaða á orkutankinn með því að gera eitthvað sem þér finnst stórkostlega skemmtilegt. En þú verður að forgangsraða áhugamálunum og leggja mesta rækt við þau áhugamál sem gefa þér mest. Áhugamál sem skila þér fúlum heim ættu ekki að vera ofarlega á blaði hjá þér. Þú átt að koma endurnærður heim. Ég æfði fótbolta og körfubolta frá því að ég var sex til átján ára og hafði gaman af enda æfingafélagarnir skemmtilegir. Ég hef aðeins spriklað í þessum íþróttum síðustu ár, farið í bumbubolta. En ég er nánast hættur því. Aðallega vegna þess að mér fannst það ekki nógu skemmtilegt í samanburði við annað sem er í boði. Ketilbjöllur og styrktaræfingarnar komu inn í líf fjölskyldunnar fyrir 10 árum og hafa verið þar síðan. Mér finnst ótrúlega gaman að stúdera æfingar og prófa nýjar og gamlar aðferðir, bæði á sjálfum mér og öðrum. Æfingahópurinn okkar, fólkið sem kemur á æfingar, deilir þessum áhuga. Það er orkugefandi að hitta fólk sem hefur áhuga á því sama og þú. Fólk sem ekki hefur áhuga, dettur fljótt út þannig að eftir situr fólk sem hefur gaman af því að hittast, æfa, taka vel á því og spjalla svo um heima og geima. Í æfingunum okkar fléttast saman vinna og áhugamál og það er góð blanda. Brasilískt jiu jitsu er íþrótt sem ég kynntist um svipað leyti og við byrjuðum að vinna með ketilbjöllurnar. Það er skrýtið hvað maður getur tengt sterkt við sumar íþróttir á meðan aðrar segja manni lítið. Ég fann strax kikkið þegar ég byrjaði að æfa jiu jitsu. Fannst strax ótrúlega gaman að tuskast á æfingum og fannst ég læra eitthvað nýtt á hverri æfingu. Ég hef ekki gefið mér mjög mikinn tíma í íþróttina, hef æft hana í smáum skömmtum í tíu ár, en er kominn í gang aftur með góðu fólki og hlakka til hverrar æfingar. Ég á mjög margt ólært og er reglulega minntur á það á æfingum. En það skiptir ekki máli, neistinn er þarna. Jiu jitsu upplifunin hjálpar mér að skilja betur gleðisvipinn á þeim sem taka þátt í hlaupa- og hjólreiðakeppnum, hvað dregur menn út á golfvöll og í bumbubolta. Það er þessi sterka tenging við áhugamálið. Þessi djúpa gleði sem maður finnur þegar maður virkilega sekkur sér í eitthvað sem manni finnst skemmtilegt og gefandi. Eitthvað sem útilokar allt annað á meðan á því stendur. Svoleiðis eiga áhugamál að vera. Það skemmtilega við jiu jitsuæfingarnar er að við æfum núna saman nokkrir karlar sem allir eigum börn á svipuðum aldri. Við tökum yfirleitt krakkana með á æfingar. Þau leika sér saman í alls konar leikjum á meðan við glímum. Þau venjast í leiðinni íþróttinni, prófa stundum að glíma með okkur og taka meira og meira þátt. Læra íþróttina á afslappaðan hátt. Við feðgar tengjumst þannig í kringum áhugamál. Elsti sonur minn hefur líka áhuga á íþróttinni og það er gaman að fá að glíma við hann. Tæplega tvítugur, orðinn miklu stærri en ég í dag, en verður samt alltaf í mínum huga litli molinn sem hékk á öxlinni á mér nokkra mánaða gamall og hlustaði á mig syngja „Aldrei fór ég suður“. Ég hef lengi haft mikinn áhuga á fótbolta, að horfa á leiki með mínum liðum. En liðin sem ég held með eru ekki tóm uppspretta hamingju, þau ströggla yfirleitt meira en þau sigra. Ár eftir ár. Eftir marga leiki í röð þar sem ég kom svekktur heim af vellinum, þá ákvað ég að slaka aðeins á. Fara sjaldnar á völlinn og hætta að taka úrslitin jafn mikið inn á mig. Það hefur gefið mér tíma og orku til að gera aðra hluti. Nú fer ég mest á leiki hjá mínum eigin börnum. Ég mun alltaf fylgjast með strákunum á meðan þeir keppa í íþróttum eða taka þátt í öðrum viðburðum. Mér finnst það ótrúlega gaman. Fyrst var ég stressaður fyrir þeirra hönd og var mikið að reyna að leiðbeina þeim með gáfulegum köllum inn á völlinn. Í dag reyni ég að vera rólegri, nýt þess að sjá þá spila, verandi miklu betri í fótbolta en ég var á þeirra aldri. (Einn er reyndar í pásu frá fótboltanum en ég er nokkuð viss um að hann á eftir að byrja að æfa aftur áður en langt um líður þar sem hann hefur svo gaman af því að spila fótbolta.) Síðasta vetur byrjaði ég á því að taka nokkrar mínútur á dag í að læra spænsku í gegnum DuoLingo.com. Ég á enn langt í land með spænskuna en finn að ég tek framförum og hef alltaf gaman af náminu. Nálgunin er góð, maður þjálfast í að lesa, skrifa, tala og hlusta. Það er gefandi að eiga áhugamál sem hjálpa manni að bæta sig, hvort sem það er í íþrótt, tungumáli, tónlist eða einhverju öðru. Það þarf alls ekki að taka langan tíma, en krefst þess að maður haldi sig við efnið. Ég les mikið, en myndi ekki beinlínis kalla það áhugamál beinlínis. Hins vegar lúra nokkur spennandi áhugamál handan við hornið, bíða spennt eftir því að ég veiti þeim athygli. Gítar, trommur, brimbretti og fríköfun eru á þessum lista. Til þess að koma nýjum áhugamálum að, er ráðlegt að taka eitthvað annað út í staðinn. Einfalda lífið í stað þess að flækja það. Áhugamál sem tengja mann enn frekar við börnin og makann eru frábær fyrir pabba.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE