7 - Einfaldaðu lífið
Bandarískur vinur minn seldi allar eigur sínar fyrir 10 árum. Einbýlishús, líkamsræktarstöð, bíla og nánast allt annað sem hann átti. Honum fannst hann vera orðinn fangi í eigin lífi. Alltaf að leita að einhverju meira en hann hafði. Fastur í stressheimi. Í dag ferðast hann um heiminn með konunni sinni allt árið um kring, heldur námskeið og selur æfingavídeó á netinu. Allt sem hann á í dag kemst fyrir í bakpoka. Einfalt líf sem uppfyllir bæði þarfir hans og hennar. En þú þarft ekki að segja upp vinnunni og selja allt sem þú átt til þess að einfalda lífið. Einfaldara líf snýst um að greina hvað skiptir mann mestu máli í lífinu og einbeita sér að því í stað þess að flækja hlutina og vera á stanslausum spretti í gegnum lífið. Einfaldara líf krefst minni tekna. Gefur þér meiri tíma og orku. Akkúrat það sem þú vilt sem pabbi. Þú vilt hafa tíma til að sinna þínum nánustu og orku til að gera það vel. Það er hægt að einfalda lífið á marga vegu. Þú getur tekið heimilið í gegn, losað ykkur við allt óþarfa dót sem til er á öllum heimilum. Lítið notuð rafmagnstæki, húsgögn, krukkur, blöð, föt, listinn er ótæmandi. Þetta er sérstaklega tilvalið ef þú ert að verða pabbi. Ungabörnum fylgja ýmis tæki og tól sem þarf að vera pláss fyrir. Það er auðvelt að fara yfir strikið og safna að sér alltof miklu ungbarnadóti, en það er óhjákvæmilegt að börnunum fylgi einhver búnaður sem bætist við heimilishaldið. Þú getur líka einfaldað lífið með því að koma þér upp einföldum og góðum venjum. Við mannfólkið erum vanadýr og góðar venjur henta okkur vel. Þú gætir til dæmis byrjað alla daga á því að fara í morgungöngu og gert síðan nokkrar liðleikaæfingar. Farið í búðina á mánudögum til að kaupa í matinn fyrir vikuna. Leikið við börnin og lesið fyrir þau á svipuðum tíma á hverju kvöldi. Tæknin á að einfalda okkur lífið og á margan hátt gerir hún það. Netið svarar nánast öllum spurningum á örskömmum tíma og það er einfalt að vera í samskiptum við fólk alls staðar í heiminum. En tæknin er líka krefjandi og kröfuhörð. Facebook, Twitter, Instagram, Snapchat og allt hitt krefst athygli sem margir eiga erfitt með að stýra. Ég er engin undantekning, ég hef verið tölvupóstfíkill síðan ég fékk minn fyrsta tölvupóst og þarf að berjast með kjafti og klóm við freistinguna að taka netrúntinn minn. Hann inniheldur nokkrar vefsíður sem ég stekk inn á, eina á eftir annarri. Án þess að fá neitt sérstakt út úr því. Rúnturinn komst bara einhvern veginn upp í vana og það er erfitt að losna við hann. Netið er magnað, það opnar á svo margt og gefur manni svo mörg tækifæri en ef maður passar sig ekki getur það étið allt of mikið af lífi manns. Ef þú vilt gera meira með börnunum þínum, gæti fyrsta skrefið í því að einfalda lífið verið að minnka netnotkunina. Samskipti við neikvætt og leiðinlegt fólk er sömuleiðis eitthvað sem kjörið er að lágmarka eða taka alveg út. Lífið er of stutt fyrir samskipti við fólk sem þrífst á neikvæðni, kjaftasögum og almennum leiðindum. Við þekkjum öll svona fólk, orkusugur, en okkur ber engin skylda til að rækja tengsl við það, sama hvort sem þau eru nátengd fjölskylduböndum eða ekki. Það einfaldar lífið að hætta að umgangast þá neikvæðu. Húsnæði skiptir máli þegar börn bætast við fjölskyldur. En börn þurfa ekki eins mikið pláss og margir halda, þau þrífast jafnvel oft betur í minna húsnæði. Eru þá meira með systkinum sínum og foreldrum, minna ein inni í herberginu sínu. Okkar fjórir strákar hafa allir deilt herbergi með einhverjum af bræðrum sínum, vel fram á unglingsaldurinn. Ég er viss um að það hefur haft góð áhrif á þá, styrkt bræðraböndin og kennt þeim að taka tillit til annarra. Það er oft hægt að breyta eða endurskipuleggja húsnæði þegar barn bætist í fjölskylduna í stað þess að stækka og kaupa eða leigja dýrara húsnæði. Ódýrara húsnæði þýðir einfaldara líf. Einfalt líf er alls ekki leiðinlegt. Það segir sig sjálft. Þegar maður er búinn að losa sig við hluti sem skipta mann annað hvort ekki máli eða sjúga úr manni orku og einbeitir sér að fáum, gefandi hlutum sem fylla manni orku og skipta mann máli þá líður manni betur á allan hátt. Nýtur lífsins betur. Fær meira út úr lífinu. Hefur meira að gefa öðrum. Getur sinnt börnunum og fólkinu sínu betur.