×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

New Year Sale Up to 50% off
image

Njóttu ferðalagsins, Guðjón Svansson, 6- Vertu frjó fyrirvinna

6- Vertu frjó fyrirvinna

Þú þarft ekki að vera í vinnunni allan sólarhringinn þótt þú sért orðinn pabbi, það er ekki það sem börnin þín og maki þurfa mest á að halda. En þú þarft auðvitað að afla tekna. Það kostar að reka fjölskyldu, jafnvel þótt þið kaupið ekki stærri bíl eða nýtt hús. Ég var í námi þegar fyrstu tveir strákarnir okkar fæddust. Vann svo í sumarfríum og aðeins með náminu. Það gekk upp, við lifðum samkvæmt því sem við öfluðum. Það er finnst mér það mikilvægasta, lifa ekki um efni fram og fara vel með það sem maður aflar á þessum tímum þegar tíminn og samveran eru svo dýrmæt. Það er alls ekkert að því að hafa góðar tekjur. Að mínu mati eiga þær þó ekki að koma fyrst. Ekki að vera aðalatriðið. Góð heilsa og gæðatími með makanum og börnunum ættu að forgangsraðast hærra. Tímarnir eru að breytast og tækifæri til að afla sér tekna á annan hátt en að vinna myrkranna á milli. Fyrirtæki eru mörg hver farin að greiða fyrir afköst og árangur í stað þess að festa sig í fjölda vinnustunda. Það þýðir að kraftmiklir, duglegir og hugmyndaríkir einstaklingar geta fengið greitt meira fyrir styttri vinnutíma. Ég veit ekki hvernig þú aflar þér tekna í dag, en ég er nokkuð viss um það að þú hefur einhverja möguleika á að laga vinnutímann til þannig að hann henti þér og fjölskyldunni betur. Þú þarft að opna hugann, vera frjór, hugsa út fyrir kassann. Ekki vera smeykur við að koma með hugmyndir og stinga upp á nýjum leiðum. Í versta falli færðu nei sem svar. Þá hefur þú val um hvort þú sættir við það svar eða hvort þú vilt leita á nýjar slóðir varðandi tekjuöflun. Mín reynsla er að þegar einar dyr lokast, hvort sem maður lokar þeim sjálfur eða aðrir gera það fyrir mann, þá opnast aðrar í staðinn. Maður þarf að trúa á sjálfan sig, eigin getu og hæfileika og vera óhræddur við að prófa sig áfram. Það er gott að treysta ekki bara á eina innkomuleið. Ef þér tekst að koma þér upp fleiri tekjustraumum ertu minna háður hverjum og einum. Netið býður til dæmis upp á ótal tækifæri, sama hvaða bakgrunn þú hefur og hverju þú ert bestur í. Ég hef bæði reynslu af því að vinna hjá sjálfum mér og öðrum. Ég hef verið með góðar tekjur, meðaltekjur og lágar tekjur. Ég hef unnið stutta vinnudaga og langa vinnudaga. Það sem hentar mér best í dag er að vera með tvo til þrjú ólík verkefni í gangi á sama tíma. Vinna að einu verkefni í einu, en skipta reglulega á milli þeirra. Ég veit að þetta hentar ekki öllum, en alveg eins og með mataræðið og flest annað í lífinu þá þarf maður að prófa sig áfram með vinnu og verkefni, finna hvað hentar manni best. Hvað gefur manni mest. Bæði hvað varðar góða orku og tekjur. Það er ótrúlega hvetjandi að vinna við eitthvað sem manni finnst skemmtilegt og gefandi. Manni líður betur á allan hátt og gefur meira af sér þegar maður er ekki í vinnunni. Eykur þar með líkurnar á að vera betri pabbi. Eitt af því sem mig hefur lengi langað að gera er að skrifa bók og gefa hana út. Þetta hefur verið draumur hjá mér í mörg ár. Ég hef fengið margar hugmyndir að bókum, á inngang og fyrstu síður að átta til níu bókum. Mér finnst gaman að skrifa. En hingað til hefur mig skort kraft, vilja, þor eða úthald til þess að klára bók og gefa hana út. Fyrr en núna, þetta er fyrsta bókin mín. Ég ákvað í vor að þetta gengi ekki lengur, ég yrði að láta vaða. Í fyrsta lagi yrði ég að taka frá tíma til að skrifa bókina, í öðru lagi yrði ég að aga mig til að skrifa, einbeita mér að verkefninu og í þriðja lagi yrði ég að bægja frá öllum neikvæðum hugsunum um viðbrögðin. Það er nefnilega svo magnað að þótt maður viti vel að jákvæðar hugsanir gefi manni alltaf miklu meira, þá ná þær neikvæðu stundum að lauma sér inn í hausinn á manni og þótt að þær séu fáar þá geta þær verið mjög öflugar. Eitt af því sem hefur haldið aftur af mér með að skrifa bók er hræðslan við að enginn myndi kaupa hana. Og sú hugsun laumar sér enn inn í kollinn á mér, núna á meðan ég skrifa bókina. En ég er orðinn nokkuð góður í að tækla þessa hugsun, svara henni hátt og skýrt þannig að ef að einn pabbi muni lesa þessa bók og geti nýtt sér hana til að verða aðeins betri pabbi, þá hef ég gert gagn, gert heiminn örlítið betri. Ef tveir pabbar lesa hana, þá er ég búinn að tvöfalda árangurinn. Og svo framvegis. Þetta virkar vel fyrir mig, hjálpar mér að halda áfram með verkefnið. Ná markmiði. Og nú ert þú að lesa þessa bók. Það finnst mér frábært! Ég vona virkilega að hún komi þér að góðum notum, verði þér hvatning. Ef þú átt þér draum sem tengist vinnu eða tekjum, stefndu að því að láta hann rætast. Ef hann rætist þá færð þú að upplifa eitthvað magnað. Ef hann rætist ekki, þá hefur þú lært eitthvað nýtt. Eitthvað sem nýtist þér í lífinu. Ef þú hins vegar gerir ekkert, talar sjálfan þig frá því að láta reyna á drauminn, þá er líklegt að þú eigir alltaf eftir að sjá eftir því. Að þú munir út lífið velta því fyrir þér öðru hvoru hvað hefði gerst ef… Ég er mikill hvatamaður þess að pabbar hugsi opið um tekjustrauma og vinnu. Ég hef séð alltof marga pabba festast í vinnu sem dregur úr þeim orku og tekur mestan þeirra tíma. Það bitnar á heimilislífinu. Sama hvað tekjurnar eru góðar. Menn koma þreyttir og hálffúlir heima eftir langa og leiðinlega daga. Það er ekki góð staða. Það er vont að vera fastur. Sumir festa sig í nafni atvinnuöryggis. En atvinnuöryggi er ekki til í raun og veru. Svo lengi sem þú vinnur fyrir aðra en sjálfa þig er alltaf hægt að segja þér upp. Aðstæður geta alltaf breyst, í öllum fyrirtækjum og stofnunum. Þess vegna er best að stefna að því að koma sér upp nokkrum tekjustraumum sem eru óháðir hvorum öðrum. Ef þú nærð því ertu ekki fastur, heldur frjáls. Frjáls til að sinna þeim verkefnum sem gefa þér mest, gera það sem þú ert bestur í og þér finnst skemmtilegast. Frjáls til að vera góður pabbi sem hefur tíma og orku til að sinna börnunum sínum.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE