×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

New Year Sale Up to 50% off
image

Njóttu ferðalagsins, Guðjón Svansson, 4 - Vertu góður við makann þinn

4 - Vertu góður við makann þinn

Það er eiginlega galið að skrifa sér kafla um að vera góður maki, það á að vera svo sjálfsagt. En ég geri það samt af því að mér finnst það svo mikilvægur þáttur í því að vera góður pabbi. Konan mín, Vala, er minn besti vinur. Við höfum verið saman núna í 25 ár. Við ólumst upp í sitt hvorum enda Reykjavíkur og hittumst fyrst þegar við vorum rúmlega tvítug. Ég hafði lítið pælt í börnum áður en við hittumst. Hafði eiginlega ekkert gaman af börnum og datt alls ekki í hug þegar við hittumst fyrst að ég ætti eftir að eignast fjögur börn með með þessari spennandi og skemmtilegu stelpu úr Vesturbænum. Það að hafa ekki gaman af börnum breyttist eins og hendi væri veifað um leið og við eignuðumst fyrsta guttann okkar. Það var mögnuð tilfinning sem opnaði á nýjar tilfinningastöðvar hjá mér og síðan þá hef ég haft gaman af langflestum börnum. Finnst gaman að fylgjast með þeim og að spjalla við þau um heima og geima. Ef þú ert eins og ég var, að verða pabbi og hefur ekki haft gaman af börnum hingað til, ekki hafa áhyggjur. Þetta á eftir að breytast. Það er eiginlega ómögulegt að lýsa því almennilega sem gerist í hausnum á manni þegar maður eignast börn en það víkkar sjóndeildarhringinn og færir manni annað og æðra hlutverk í lífinu. Það að bera ábyrgð á pínulítilli lifandi manneskju sem treystir þér 100% breytir manni. Bætir mann. Það er gulls ígildi fyrir börn á öllum aldri að sjá og finna að foreldrar þeirra eru góðir vinir og þykir vænt um hvort annað. Þegar þú knúsar konuna og sýnir henni ástúð og umhyggju kennir þú börnum þínum það sama. Ert þannig góð fyrirmynd fyrir börnin þín. Konan þín á síðan auðvitað skilið að þú sért góður við hana. Það er ekkert grín að ganga með og fæða barn. Ég hef eðlilega ekki prófað það sjálfur, en ég hef farið í gegnum ferlið fjórum sinnum með minni konu og veit nokkurn veginn hvað ég er að tala um. Ógleði, hormónabreytingar, skapsveiflur, þyngdaraukning, aðrar líkamlegar breytingar, að geta ekki gert hluti sem áður voru einfaldir og eðlilegir. Meðgangan tekur níu mánuði, fæðingin er sársaukafyllri en flestir karlmenn geta ímyndað sér og svo tekur við brjóstagjöf, svefntruflanir og allt hitt. Það er ekki alltaf auðvelt að vera styðjandi á þessu tímabili, hormónabreytingarnar geta skilað sér á ýmsan hátt, stundum þekkir maður ekki alveg konuna sína – hún segir hluti sem hún hefur ekki sagt áður eða pirrar sig á smáatriðum sem maður botnar ekkert í – en mundu bara minn kæri að þetta eru afleiðingar þess sem hún er að ganga í gegnum líkamlega og því yfirvegaðri og skilningsríkari sem þú ert, því betri verður útkoman fyrir alla. Því betri sem þú ert við konuna þína, því betur á þér sjálfum eftir að líða. Tímabilið í kringum fæðingu barns er spennandi og skemmtilegt, því fylgir mikil tilhlökkun. En sömuleiðis krefjandi áskoranir sem mikilvægt er að gera sér grein fyrir og tækla vel. Ég hef sjálfur lært ýmislegt af þeim mistökum sem ég hef gert í gegnum þær fjórar meðgöngur sem við höfum gengið í gegnum saman. Byggt á þessum mistökum og lærdómi eru hér nokkir punktar fyrir verðandi og glænýja pabba: • Vertu vel líkamlega undirbúinn og haltu áfram að hreyfa þig og æfa þegar meðgöngutímabilið er hafið. Sama hversu fáar mínútur í sólarhringnum þú hefur. Líkamlegur styrkur er góður grunnur fyrir þann andlega styrk og yfirvegun sem þú þarft að hafa í krefjandi aðstæðum. • Hugsaðu fallega til konunnar þinnar alla daga. Rifjaðu upp skemmtilegar stundir, rómantískar upplifanir. Þetta tímabil á eftir að ganga yfir og samband ykkar tveggja á bara eftir að styrkjast og eflast þegar aðstæður róast (börnin eldast). • Vertu skipulagður, settu upp vaktaplan þar sem þú getur tekið álagið og hún hvílt sig alveg á meðan. • Vertu skemmtilegur og hrósaðu henni. Nú er ekki tíminn til að gagnrýna eða gera kröfur. • Segðu henni að þú elskir hana. Það er ekki nóg að hugsa það, hún vill heyra það líka • Taktu þátt í öllu ferlinu eins mikið og þú mögulega getur. Öndunaræfingunum, pælingunum um vöggu og veggfóður, næringu ungbarna og öllu hinu. • Passaðu djammið. Ekki vera úti með félögunum allar nætur, koma seint heim og vera svo sofandi á sófanum allan næsta dag. • Njóttu tímabilsins. Þetta er algjört ævintýri, að fylgjast með nýju lífi verða til og fá svo að halda á þínu eigin barni þegar það er komið í heiminn. Þegar börnin eldast á maður að sjálfsögðu að halda áfram að vera góður við konuna sína. Koma henni á óvart (á jákvæðan hátt), redda pössun og skjótast í stutt hjónafrí með henni, gefa skyndigjafir og styðja og hvetja á allan mögulegan hátt. Þessar hugleiðingar eiga bæði við þig sem ert í sambandi með mömmunni og þig sem ert það ekki. Börn læra af því sem þau sjá og upplifa og ef samskipti milli foreldra og sambúðafólks eru erfið, þá hefur það bein áhrif á börnin. Vertu góður við makann. Það skilar sér beint til barnanna.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE