×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

Njóttu ferðalagsins, Guðjón Svansson, 17 - Kynnstu öðrum pö… – Text to read

Njóttu ferðalagsins, Guðjón Svansson, 17 - Kynnstu öðrum pöbbum (foreldrum)

Intermediate 2 Icelandic lesson to practice reading

Start learning this lesson now

17 - Kynnstu öðrum pöbbum (foreldrum)

Eitt af því skemmtilega við að eiga börn er að þau stækka heim manns og opna dyr sem annars væru manni lokaðar. Börn tengjast öðrum börnum í gegnum leiki, æfingar, skóla og aðra staði þar sem þau hittast reglulega. Þetta þýðir að við foreldrar þeirra kynnumst öðrum foreldrum í gegnum börnin okkar. Fólki sem maður annars hefði líklega aldrei kynnst. Við höfum kynnst mörgu góðu fólki í gegnum strákana okkar. Foreldrum bekkjarfélaga þeirra, foreldrum vina þeirra og foreldrum æfingafélaga þeirra. Það að ferðast með börn er ótrúlega skemmtilegt og gefandi. Þau eru forvitin um nýja staði, opin fyrir nýjungum og eiga oft auðveldara með að laga sig að nýjum aðstæðum en fullorðnir. Þau taka sér þó mislangan tíma í þetta eins og við höfum lært með okkar stráka. Sá elsti dettur strax inn í nýtt umhverfi, nánast eins og hann hafi alltaf búið þar. Sá næst elsti þarf meiri tíma, þarf að skoða allt vel og meta aðstæður í einn til tvo daga áður en hann samþykkir þær. Sá þriðji í röðinni er mitt á milli eldri bræðra sinna, fljótur að aðlagast en þarf trausta ramma. Sá yngsti, sem er fimm ára í dag, er hugsanlega mesti flakkarinn í fjölskyldunni. Hann elskar að ferðast, sama hvert, og þegar við erum að leggja af stað í ferðalag, er hann alltaf fyrstur í ferðafötin, bíður tilbúinn með töskuna sína eftir okkur hinum. Fólk hefur almennt gaman af börnum og það er gaman að upplifa hvað það að ferðast með börn breytir viðmóti þeirra sem taka á móti manni. Það er sérstaklega sterkt í minningunni þegar við fjölskyldan komum til Bólivíu eftir margra klukkutíma rútuferðalag frá Argentínu hvað bólivísku landamæraverðirnir voru hressir og skemmtilegir við okkur þegar við löbbuðum saman í gegnum landamæraeftirlitið. Það var búið að vara okkur við því að þeir gætu verið erfiðir og smámunasamir og við sáum að þeir voru ekkert sérstaklega ljúfir við alla bakpokaferðalanganna sem voru á undan okkur í röðinni. Þegar þeir sáu strákana okkar, þreytta en brosmilda, þá ljómuðu þeir hinsvegar allir upp, grínuðust í guttunum og hleyptu okkur hratt og örugglega í gegn. Á Barbados tekur tíma að kynnast fólki. Það kemur svo mikið af ferðamönnum til eyjunnar að heimamenn gefa sér almennt ekki tíma til að kynnast fólki. Við dvöldum á Barbados í fjóra mánuði og ákváðum strax að finna íþróttafélög fyrir strákana, búa til fasta ramma fyrir þá og gefa þeim kost á að æfa sína íþrótt og kynnast heimakrökkum í leiðinni. Við fundum fótboltaklúbbinn KickStart fyrir fótboltastrákana og bardagaíþróttafélagið UMAA fyrir þann elsta. Þeir fóru reglulega á æfingar allan þann tíma sem við bjuggum á eyjunni og fannst það alltaf jafn gaman. Við kynntumst foreldrunum og upplifðum skemmtilega hluti í gegnum þá. Fórum í afar lifandi messur, grillveislur og fleira skemmtilegt. Við kynntumst þjálfurunum sömuleiðis vel og erum enn í tengslum við suma þeirra. Var ekki krefjandi að vera svona mikið með börnunum? Við fengum þessa spurningu oft eftir ársferðalagið okkar. Svarið er nei, þvert á móti. Þau opna ekki bara dyr fyrir mann inn í ný samfélög. Maður kynnist börnunum sínum betur með því að vera svona mikið með þeim. Lærir betur inn á þau. Hvað veitir þeim gleði, hvað þarf til þess að þeim líði vel og upplifi sig örugg. Hvernig maður tæklar þreytu þeirra og ergelsi. Svo lærir maður af þeim. Lærir að lifa í núinu og njóta augnabliksins. Börn eru gleðigjafar. Þau eru fljót að laga sig að nýjum aðstæðum og kynnast öðrum börnum. Þannig opna þau á tækifæri fyrir þig, pabba þeirra, til þess að kynnast fullorðnu fólki og komast inn í nýtt samfélag, hvort sem þú ert að flytja til lengri tíma eða ert á ferðalagi.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE