×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

Njóttu ferðalagsins, Guðjón Svansson, 16 - Vertu opinn fyri… – Text to read

Njóttu ferðalagsins, Guðjón Svansson, 16 - Vertu opinn fyrir tækifærum

Intermediate 2 Icelandic lesson to practice reading

Start learning this lesson now

16 - Vertu opinn fyrir tækifærum

Ég var skelfilega feimið barn. Fékk það líklega beint í arf frá pabba, hann var það líka. Þetta stoppaði mig oft. Ég var feiminn við að takast á við nýjar áskoranir, tala við krakka og fólk sem ég þekkti ekki, dansa við stelpur. Þetta háði mér lengi vel. En svo á einhverjum tímapunkti gafst ég upp á því að vera svona feiminn og að segja alltaf nei við öllu sem var utan þægindaramma míns. Ég fór að segja já, jafnvel þótt ég fengi í magann við tilhugsunina við það sem um ræddi. Og lífið gjörbreyttist við það. Þegar maður þorir að láta vaða, takast á við eitthvað nýtt, þá eflist maður og á auðveldara með að takast á við næstu áskorun. Smám saman hætta fyrstu viðbrögðin að vera leit að afsökunum, maður fer í staðinn að hugsa hvort það gæti ekki verið skemmtilegt að prófa þetta. Síðan ég hætti að segja nei og ákvað að hætta að vera feiminn, hef ég haldið fyrirlestra og námskeið, kennt við háskóla, leikið í bíómynd (örhlutverk), tekið þátt í sjónvarpsþætti, þjálfað hópa og einstaklinga, farið í viðtöl í fjölmiðlum, skrifað pistla og greinar og haldið ræður við hátíðleg tækifæri. Ef ég myndi stökkva upp í tímavél, ferðast rúm 30 ár til baka og segja ungum sjálfum mér frá þessu, þá myndi ég aldrei trúa mér. Feimni-ég myndi skella hurðinni á framtíðar-mig og hrista hausinn í vantrú. Ég er áfram feiminn í grunninn, en er bara harðákveðinn í að láta það ekki hindra mig í því að gera það sem mig langar til að gera. Þetta snýst um sjálfstraust, að trúa á eigin getu, að maður hafi eitthvað fram að færa. Að maður sé ekki verri enn aðrir. Þetta snýst líka um viðhorf. Það að þora. Þora að láta vaða þótt manni finnist maður ekki vera 100% tilbúinn. Hugsa þess í stað, hvað er það versta sem gæti gerst? Yfirleitt er það eitthvað smávægilegra og saklausara en maður heldur í upphafi. Það kann enginn allt. Margir hugsa þannig að þeim finnst þeir aldrei vera tilbúnir, finnst að þeir þurfi að læra meira, undirbúa sig betur. En maður vex með hverri áskorun, með því að framkvæma í stað að bíða eftir því maður verði 100% tilbúinn. Eitt af því sem hafði mikil áhrif á stóra fjölskyldudrauminn okkar var tækifæri sem datt upp í hendurnar á okkur um hálfu ári áður en við höfðum ætlað að leggja af stað í heimsreisuna. Mér bauðst vinna á Barbados í Karabíska hafinu, en þar vantaði mann til að sinna ákveðnu verkefni í fjóra mánuði. Þetta var verkefni sem ég hafði einhvern grunn í, en að hluta til var það utan míns sérsviðs. Utan þægindarammans. Við þyrftum líka að fara fyrr af stað en við höfðum áætlað, í ágúst í stað október. Við höfðum ekki ætlað að fara til Barbados, vissum lítið um þessa fallegu eyju á þeim tíma. Planið var heldur ekki að ég myndi vera í fullri vinnu fyrstu mánuðina. En í stað þess að segja nei, tókum við okkur smá tíma til þess að meta tilboðið og eftir stutta yfirlegu ákváðum við að slá til. Við sáum alls ekki eftir því. Barbados er paradísareyja, við komumst inn í samfélagið þessa fjóra mánuði sem við bjuggum þar, lærðum margt og hlökkum til að fara þangað aftur. Lífið er stútfullt af tækifærum. Yfirleitt þarf maður ekki að leita eftir þeim, þau koma til manns þegar maður er búinn að opna tækifæragáttina. Alveg eins og maður verður að vera rólegur og yfirvegaður til að tækla óvæntar og erfiðar aðstæður, þá er mikilvægt að bregðast yfirvegað við þegar ný tækifæri bjóðast manni. Fá smá tíma til að meta stöðuna áður en maður svarar, skoða málið með jákvæðu hugarfari og taka síðan ákvörðunina og svara. Alls ekki segja leyfa fyrstu viðbrögðunum að vera nei. Þú sem pabbi ert hér í lykilhlutverki. Ef þú bregst jákvætt við nýjum áskorunum og tækifærum, eru börnin líklegri til að gera það líka og það mun gera líf þeirra innihaldsríkara og skemmtilegra. Ef þú ert feiminn eins og ég, viðurkenndu það fyrir sjálfum þér og leitaðu síðan leiða til þess að sigra feimnina. Ég lofa þér því að þú átt eftir að upplifa margar ánægjulegar stundir í þeirri baráttu.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE