×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

Njóttu ferðalagsins, Guðjón Svansson, 15 - Vertu undirbúinn… – Text to read

Njóttu ferðalagsins, Guðjón Svansson, 15 - Vertu undirbúinn...fyrir hið óvænta

Intermediate 2 Icelandic lesson to practice reading

Start learning this lesson now

15 - Vertu undirbúinn...fyrir hið óvænta

Lífið býður okkur stöðugt upp á eitthvað óvænt. Það er sjaldnast langdregið og leiðinlegt. Við getum planað og skipulagt fram í rauðan dauðann, svo gerist eitthvað sem kollvarpar plönunum. Þá þurfum við að vera tilbúin. Tilbúin til að bregðast við af yfirvegun og rósemi. Við áttum ekki von á því þegar við lögðum af stað í heimsreisuna að íslenska fjármálakerfið myndi hrynja stuttu síðar og íslenska krónan hríðfalla. Við höfðum reyndar skipt hluta af ferðasjóðnum okkar í dollara, eftir á að hyggja hefðum við auðvitað átt að skipta honum öllum í erlenda mynt. En eftir-á-spekin kemur sjaldnast að miklu gagni þegar maður er akkúrat í aðstæðunum sjálfum og þarf að bregðast við. Möguleikarnir voru þrír. Sá fyrsti var að halda okkur áfram í Suður Ameríku, lengja stoppin þar á hverjum stað og ferðast á milli staða í rútum. Halda okkur við tímaplanið. Annar möguleikinn var að halda áfram með heiminn, ná að komast til allra heimsálfa eins og við höfðum lagt upp með í byrjun, en fækka stöðum og stytta mjög stoppin á hverjum stað. Stytta ferðina sjálfa niður um helming. Þriðji möguleikinn var að drífa sig strax heim til Íslands. Við vorum fljót að útiloka þriðja möguleikann, það var lítið spennandi að koma allt of snemma heim, beint inn í hrunið. Annar möguleikinn freistaði, það var spennandi að fara til allra álfanna, en á móti fannst okkur ekki eins spennandi að stytta ferðina svona mikið. Við völdum því Suður Ameríkuleiðina og gerðum áætlun sem ætti að gera okkur kleift að láta ferðasjóðinn endast. Þetta var val sem byggðist á að því að anda með nefinu, kortleggja hvaða kostir væru í stöðunni, ræða þá og taka svo ákvörðun sem allir voru sammála um. Hluti af ákvörðuninni byggðist á því að við myndum seinna fara í fleiri ferðir, skoða hinar álfurnar síðar. Sá yngsti var hljóður og hugsi þegar við töluðum að fara gera þetta að álfuferð og heimsækja aðrar heimsálfur síðar. Þegar við spurðum hann af hverju var hann mjög skýr í svari: „Mig langar bara ekkert í neina álfaferð!“. Sem pabbi getur maður aldrei verið undirbúinn fyrir allar þær aðstæður sem börnin manns geta lent í. En maður getur gert sitt allra besta til að fyrirbyggja slæmar aðstæður með því að vera góð fyrirmynd, uppbyggjandi, hvetjandi og fræðandi. Lagt sitt af mörkum til þess að auka líkurnar á því að börnin manns taki góðar ákvarðanir. Maður getur líka undirbúið sig fyrir óvæntar aðstæður með því að ákveða fyrirfram hvernig maður ætlar að bregðast við þeim. Ég á ekki við að maður eigi að velta sér upp úr öllu því sem hugsanlega gæti gerst þegar börnin manns taka sér eitthvað fyrir hendur sem er utan þægindaramma þíns. Það sem ég á við er að maður getur komið sér upp einföldu ferli sem nýtist þegar bregðast þarf við óvæntum aðstæðum, sama hverjar þær eru. Þegar óvæntar aðstæður koma upp skiptir öllu máli að bregðast yfirvegað við, taka ákvarðanir út frá aðstæðum og þeim möguleikum sem eru í stöðunni. Stundum þarf að bregðast hratt við, stundum hefur maður meiri tíma. Hvort sem er skiptir ró, yfirvegun, traust og ákveðni öllu máli. Það versta í stöðunni er að taka ákvarðanir og framkvæma þegar maður er ekki í andlegu jafnvægi og hefur enga yfirsýn. Samvinna er lykilatriði. Þegar eitthvað óvænt kemur upp í fjölskyldunni er mikilvægt að þú og maki þinn getið unnið vel saman. Saman myndið þið stjórnendateymi. Þið þurfið að geta rætt yfirvegað saman, skiptið með ykkur verkum og gengið svo í það sem þarf að gera. Eftir á, þegar það er tímabært, er svo mikilvægt að fara saman yfir viðbrögðin. Ræða það sem gekk vel og fara yfir það sem betur hefði mátt fara. Byggja ofan á það sem gekk vel og læra af mistökunum.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE