×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

image

Njóttu ferðalagsins, Guðjón Svansson, 14 - Byggðu öfluga liðsheild

14 - Byggðu öfluga liðsheild

Hlutverk foreldra er svipað hlutverki þjálfara íþróttaliðs. Þjálfarinn leiðbeinir, kennir og stýrir, aðstoðar leikmenn við að greina veikleika sína og vinna með þá, hjálpar þeim að finna styrkleika sína og nýta sér þá. Hann finnur út hvar menn á vellinum njóta sín best, gerir leikmenn ábyrga fyrir hlutverkum sínum og síðast en ekki síst, kennir þeim að spila saman sem lið. Góð fjölskylda er eins og gott fótboltalið, öflug liðsheild er grunnurinn. Heimsreisan var liðsheildarverkefni. Mér fannst okkur vanta sterkari tengingu hvert við annað. Mig við strákana þar sem ég hafði verið svo mikið á flakki vegna vinnu. Og þá hvern við annan. Þeir voru á tímabili mikið í sínum eigin heimi, spáðu lítið í hina bræður sína. Þeir voru aldrei neinir óvinir, en það vantaði, fannst okkur foreldrum þeirra, meiri nánd og samhug. Fjölskyldudraumar eru góðir til þess að efla liðsheildina. Forsendan er að allir vilji taka þátt í verkefninu, að gera eitthvað saman, finnist það spennandi. Hugsanlega eru allir samstíga frá byrjun, en sumar hugmyndir þarf að kynna og selja vel áður en allir eru sannfærðir um ágæti þeirra. Börn þurfa ólíka nálgun hvað þetta varðar. Í heimsreisunni lögðum við Vala áherslu á að strákarnir tækju virkan þátt. Þeir fengu að ráða fyrsta áfangastaðnum, New York borg, og að mörgu leyti hvað við gerðum þar. Við tókum nokkra fjölskyldufundi í ferðina þegar það þurfti að taka stórar ákvarðanir og þeirra skoðanir höfðu mikið vægi á þeim fundum. Stærsta ákvörðunin sem við þurftum að taka var þegar fall íslensku krónunnar minnkaði ferðasjóðinn okkar um helming, þá þurftum við að ákveða hvort við styttum ferðina og kæmum heim miklu fyrr en áætlað, eða breyttum ferðaplönunum til þess að geta haldið okkur við tímalengdina. Strákarnir fengu allir ábyrgðarhlutverk í ferðinni og lærðu mikið af því. Sá yngsti, sem hefði átt að byrja í grunnskóla í byrjun ferðar, fékk til dæmis það hlutverk að reikna út hvað hlutir kostuðu út frá gengi ólíkra gjaldmiðla. Svona ferðir og ævintýri eru skemmtilegri og gefa manni meira ef maður hefur hlutverk, hefur eitthvað um framkvæmdina að segja. Eitt það mikilvægasta sem við höfum reynt að kenna strákunum er að standa saman. Að þeir hafi alltaf hvorn annan, sama hvað gerist í lífinu. Við höfum lagt áherslu á að þeir passi upp á hvorn annan og komi hverjum öðrum alltaf til aðstoðar þegar á þarf að halda. Í skólanum hefur til dæmis stundum verið gott að vita af og geta leitað til eldri bróðurs, ef einhverjir töffarar ætluðu að vera með stæla. Við trúum því að ferðalagið hafi lagt styrkt þessa samstöðu bræðranna, að þeir verði alltaf tengdir sterkum böndum sem munu endast út lífið. Fyrir mig, sem hafði verið talsvert í burtu frá heimilinu, var þessi ferð stórkostleg. Við fjölskyldan vorum saman alla daga og komum til baka sem öflugri liðsheild. Einhverjir höfðu áhyggjur af því fyrir okkar hönd að það að vera saman allan sólarhringinn í heilt ár væri of mikil áskorun fyrir fjölskylduna, að við fengjum leið hvert á öðru, en við fundum lítið fyrir því. Nutum þess að þvert á móti að geta verið svona mikið saman. Við pössuðum okkur líka á því að gefa einstaklingnum frelsi, sumir í fjölskyldunni þurfa meir á því að halda en aðrir að fá sinn einkatíma. Tíma til að vera einn með sjálfum sér, hugsa málin í ró og næði. Það er mikilvægt að taka tillit til þess og átta sig á að við höfum mismunandi þarfir að þessu leyti. Sem pabbi ert þú í lykilhlutverki þegar kemur að því að byggja upp öfluga liðsheild í þinni fjölskyldu. Þú ert í ábyrgðarhlutverki og þarft að vera góð fyrirmynd. Traust skiptir hér miklu máli. Þú þarft að treysta börnum þínum fyrir mikilvægum verkefnum, veita þeim hlutverk sem skiptir máli. Þannig eflir þú þau sem einstaklinga og styrkir fjölskyldu þína í leiðinni.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE