×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

image

Njóttu ferðalagsins, Guðjón Svansson, 10 - Vertu hvetjandi pabbi

10 - Vertu hvetjandi pabbi

Ég trúi á jákvæða hvatningu. Að það virki betur að hvetja börn áfram á jákvæðan hátt í stað þess að skamma þau og benda stöðugt á hvað þau gerðu vitlaust. Ég held að það virki oftast betur á fullorðna líka. Auðvitað þarf að benda á hvað má gera betur og hvað þarf að laga en það er hægt að gera það á jákvæðan hátt. Ég hef aldrei almennilega skilið hina leiðina. Þegar pabbar og mömmur tala með neikvæðum leiðindatón til barna sinna til þess að fá þau til að gera eitthvað. Það er alltaf einn þannig pabbi í sundi. „Drífðu þig drengur, ekki alltaf vera svona seinn.“ Pirraður pabbi sem greinilega er ekki að njóta þess að vera með krökkunum sínum, er með hugann einhvers staðar allt annars staðar. Maður rekst líka á sérstaka pabba á fótboltamótum. Ég sé enn eftir því í dag að hafa ekki farið og rætt aðeins við pabba sex ára markmannsins í Val fyrir 10 árum. Ég fylgdist með honum„leiðbeina“ syni sínum í gegnum heilan leik með því standa beint fyrir aftan markið hans og skamma hann fyrir nánast allt sem gerði og síðan segja honum hátt og skýrt hvað hann hefði átt að gera í staðinn. Hvorugur hafði gaman af þessu, það var ljóst. Skammir og neikvæðni brjóta niður og draga úr trú barna á eigin getu. Jákvæð hvatning hefur öfug áhrif. Hún styrkir börnin, eflir sjálfstraust og sjálfsöryggi þeirra. Þessi hvatning þarf auðvitað að tengjast þeim jákvæðu gildum sem þú og þín fjölskylda trúið á og lifið eftir. Þú hrósar barninu fyrir það sem það gerir vel, fyrir að þora að vera sjálfstætt, taka ákvarðanir, vera gott við dýr og þá sem minna mega sín og svo framvegis. Styrkir þannig gildin ykkar. Ég var pínulítið, bara pínulítið samt, eins og pabbi markmannsins í Val þegar ég fór með elsta strákinn minn á hans fyrsta fótboltamót. Hann var einmitt 6 ára og hafði ekkert rosalega gaman af fótbolta, var þarna meira til að vera með vinum sínum. En ég hafði mikinn metnað fyrir hans hönd og datt í smátíma í þann gír að reyna að uppfylla mína drauma í gegnum hann. Ég hefði alveg verið til í að ná langt í fótbolta sjálfur en gerði það ekki af ýmsum ástæðum. Sá þarna glænýtt tækifæri til þess að slá í gegn. Í gegnum hann. Ég er viss um að markmannspabbinn hafi akkúrat verið í þessu líka, hann áttaði sig bara ekki á því að hann væri í raun að skamma og öskra á sjálfan sig, ekki strákinn sinn. Ég áttaði mig sem betur fer snemma á því að mínar draumar eru ekki endilega þeir sömu og barnanna minna. Þeir geta verið það, en ekki af því að ég segi svo. Þau verða að finna sjálf hvað lætur þeim líða best, hvaða áhugamál þau vilja rækta og svo hvaða leið í lífinu þau velja. Okkar hlutverk er ekki að velja þetta fyrir þau. Okkar hlutverk er að benda þeim á góðar leiðir og möguleika, hvetja þau til að prófa sig áfram og styðja þau svo, á jákvæðan hátt, í því sem þau velja sér. Og þetta virkar ekki bara á börn. Jákvæð hvatning og það að sýna að maður hafi trú á fólki og því sem það er að gera, jafnvel og kannski sérstaklega þegar það er ekki alveg sjálft viss um að það sé á réttri leið, er ótrúlega öflugt fyrir þann sem móttekur hvatninguna. Konan mín er frábær í þessu. Hún hefur alltaf haft trú á mér og það hefur hjálpað mér mikið í því sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Ég man sérstaklega eftir því þegar við vorum nýflutt til Íslands eftir mögur en góð ár sem námsmenn í Danmörku, með tvö ung börn og það þriðja á leiðinni, að hún studdi mig í því að starfa sjálfstætt í stað þess að finna mér „örugga“ vinnu sem myndi skaffa vel. Það gaf mér mikið á sínum tíma. Ég trúi endalaust hana á móti og reyni að hvetja hana eins vel og ég get í því að láta drauma sína rætast. Ég mæli því með því að þú sem pabbi hvetjir ekki bara börnin þín jákvætt til dáða, heldur maka þinn líka. Það skilar sér margfalt til baka. Ef þú ert ekki lengur í sambandi við mömmu barnanna þinna, hvettu hana samt til dáða. Hrósaðu henni fyrir það sem hún gerir vel og passaðu þig á að tala sérstaklega vel um hana við börnin þín og þegar þau heyra til. Til styttri og lengri tíma mun það gera þeim gott.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE