×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

image

Njóttu ferðalagsins, Guðjón Svansson, 1 - Slepptu

1 - Slepptu

Kafli 1 - Slepptu.

Tíminn flýgur.

Þú verður pabbi, eignast pínulítið og ósjálfbjarga ungabarn, ungabarnið verður barn með sjálfstæðar skoðanir og vilja, barnið unglingur með öllum þeim áskorunum sem því fylgir og unglingurinn svo að fullorðinni manneskju. Þetta líður hratt. Hraðar en maður heldur. Þessi tímabil eru ólík, en öll skemmtileg, krefjandi, gefandi og lærdómsrík. Hvert á sinn hátt. Foreldrar gera gjarna ráð fyrir því að sama aðferðafræði dugi á öll börn sín ef hún dugar á eitt. Það er alls ekki svo. Sum börn verða að hafa skýrar reglur til að líða vel, önnur njóta sín betur þegar rammarnir eru rýmri. Maður þarf sem pabbi að prófa sig áfram, pabbinn er stöðugt að læra. Oft með því að gera mistök. En ef maður lærir af mistökunum, þá eru þau til góðs. Nú er ég að læra að sleppa. Elsti sonur minn og kærastan hans eru nýbúin að yfirgefa hreiðrin sín og byrjuð að búa saman í Danmörku. Við foreldrar þeirra eru búin að vera í aðlögun í nokkurn tíma, þau hafa verið svo mikið saman síðan þau kynntust. Ég hef þar af leiðandi séð minna af syni mínum en áður. Sem er gott, þannig séð. Aðlögun er góð. Mér finnst þetta vera náttúruleg og eðlileg þróun. Ég sé hvað hann er tilbúinn að takast á við lífið sem fullorðinn einstaklingur. Það var erfitt fyrir mig sem pabba þegar hann flutti út, ég sakna hans, en þetta er gangur lífsins og hann verður alltaf strákurinn minn, hvar sem hann býr í heiminum. Ég og konan mín höfum gert okkar besta til þess að gera hann tilbúinn að í að byrja sitt sjálfstæða líf fyrir alvöru. Höfum reynt að vera góðar fyrirmyndir og ala hann upp þannig að allir vegir séu honum færir. Nú er það hans að velja og spila úr þeim möguleikum sem eru í stöðunni. Það hafa verið mikil forréttindi að fá að sinna föðurhlutverkinu fyrir hann, góðu minningarnar eru óteljandi. Ég hlakka mikið til næsta tímabils, tímabilsins sem núna er að hefjast, þegar við tengjumst enn betur saman sem tveir fullorðnir einstaklingar. Fegurðin við að eiga mörg börn á ólíkum aldri er að þegar eitt verður fullorðið, þá eru nokkur börn eftir. Ég ætla að njóta þess í botn að vera með hinum þremur strákunum mínum á meðan þeir búa hjá okkur. Halda áfram að reyna að vera eins góð fyrirmynd og ég get verið og ásamt konunni minni einu undirbúa þá eins vel fyrir framtíðina og ég get.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE