×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

image

Leiðarvísir í ástamálum - Karlmenn, Orð lesara

Orð lesara

Leiðarvísir í ástarmálum eftir Ingimund gamla er meira en hundrað ára bók. Hún lýsir hugmyndum um ástarmál, samskipti kynjanna, hjónabönd og kynjahlutverk sem allar eru börn síns tíma. Margar af þessum hugmyndum þykja blátt áfram fáránlegar í dag. Sumum finnst þær móðgandi og skaðlegar og aðrir hlæja bara að því hvað þær séu þröngsýnar og bjánalegar. Það er í sjálfu sér allt í lagi. Það er allt í lagi að skoða texta síns tíma og fá hugmynd um þjóðarandann þá út frá þeim og skilja hvernig menningin hefur breyst. Það þýðir ekkert að maður þurfi að vera sammála þessum textum.

Ég las þessa bók fyrst þegar ég var unglingur og fannst hún drepfyndin, satt að segja. Hvernig hún er orðuð og sumar hugmydirnar í henni eru annaðhvort svo fyndið orðaðar, yfirgengilega hreinskilnar eða karlrembulegar að ég get ekki annað en hlegið. En innan um getur maður engu að síður fundið eitthvað sem maður er sammála og finnst ennþá gilda í dag. Hafið bara gaman af að lesa þessa bók, eða hlusta á upplesturinn og ekki taka textann of alvarlega.

Rökkvi Vésteinsson las þessa bók árið 2023 til að nota sem efni í íslenskukennslu í tungumálaforritinu LingQ og til að gefa Hljóðbókasafni Íslands. Bæði texti bókarinnar og þessi upplestur af henni tilheyra almenningi og eru því ekki höfundaréttavarin. Hver sem er má því nota hvoru tveggja, svo lengi sem það er ekki gert í gróðaskyni.

-Rökkvi Vésteinsson, Reykjavík, árið 2023

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE