×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

image

Samfélagið: Pistlar á RÚV, Verndum líffræðilega fjölbreytni

Verndum líffræðilega fjölbreytni

Árið 1992 var samningur Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni samþykktur á heimsráðstefnu um umhverfi og þróun í Rio de Janeiro í Brasilíu. Ísland undirritaði samninginn á ráðstefnunni, eins og flest önnur ríki heims, og hann tók gildi hér á landi árið 1994 . Samningurinn kveður á um að aðildarríki móti heildstæða stefnu um verndun líffræðilegrar fjölbreytni. Fyrsta stefna Íslands um líffræðilega fjölbreytni var samþykkt 2008. Nú er verið að endurskoða þessa stefnu og í samráðsgátt stjórnvalda má finna Grænbók um líffræðilega fjölbreytni íslenskra vistkerfa.

Hvað er líffræðileg fjölbreytni?

Með líffræðilegri fjölbreytni er ekki einungis átt við fjölda tegunda lífvera, heldur einnig þann breytileika sem er á milli einstaklinga innan tegunda og erfðaefni þeirra, sem og samfélögin og vistkerfin sem tegundirnar mynda.

Sem dæmi má nefna að líffræðileg fjölbreytni sumarbústaðalands liggur í fjölda tegunda plantna, dýra og annarra lífvera sem þar má finna, bæði ofanjarðar og neðan. Því má nefnilega ekki gleyma að í handfylli af mold eru mörg þúsund tegundir lífvera. Fjölbreytnin felst líka í breytileika milli einstaklinga innan tegunda, engir tveir túnfíflar á grasblettinum eru eins og ef erfðaefni þeirra væri einnig mismunur þar á milli. Líffræðileg fjölbreytni nær líka yfir breytileika í búsvæðum og vistkerfum innan sumarbústaðalandsins, þar er grasblettur fyrir framan húsið, birkikjarr á bak við og svo smá mýri í einu horninu. Allt er þetta hluti af líffræðilegri fjölbreytni. Í næsta sumarbústaðalandi er svo engin grasblettur heldur hefur mólendið fengið að halda sér með annars konar fjölbreytni. Fjölbreytni sumarbústaðasvæðisins í heild fer svo eftir fjölbreytni á milli og innan hvers sumarbústaðalands.

Það er því hægt að mæla fjölbreytni á mismunandi kvörðum, allt frá fjölbreytni innan ákveðinnar tegundar upp í fjölbreytni innan landa eða jafnvel fjölbreytni fyrir jörðina alla.

Mikilvægi líffræðilegrar fjölbreytni

Líffræðileg fjölbreytni er mikilvæg. Hún er í raun undirstaða tilveru okkar og framtíðar. Hún er forsenda heilbrigðra og starfhæfra vistkerfa og þar með þeirra gæða sem þau veita okkur, allt frá fæðu til hreins lofts og vatns. Samspil lífvera er margbreytilegt og flókið og ef ein eða fleiri lífverur hverfa getur það valdið röskun sem hefur miklar afleiðingar fyrir vistkerfið í heild.

Líffræðileg fjölbreytni er líka mikilvæg til að vistkerfi geti brugðist við breytingum eins og þurrkum, sjúkdómum og hlýnun. Meiri fjölbreytni í tegundum, eða í erfðaefni innan tegunda, eykur líkurnar á að inn á milli leynist einstaklingar sem þola þessar breytingar vel og viðhalda þannig virkni vistkerfisins. Ef fjölbreytnin er ekki til staðar er mun meiri hætta á að breytingar leiði til útdauða tegunda, röskunar á vistkerfum og taps á þeim gæðum sem náttúran færir okkur.

Nýlegt dæmi frá Íslandi um mikilvægi líffræðilegrar fjölbreytni er þegar birkikemba, nýr landnemi á Íslandi, fór að valda skaða á birki. Rannsóknir sýna að mismunandi birkiafbrigði eða kvæmi eru misviðkvæm fyrir skaðvaldinum. Í ræktun er hægt að velja afbrigði sem þola birkikembuna betur og birkiskógar eru líklegri til að þola skaðvaldinn vegna þess að fjölbreytnin veldur því að innan um eru plöntur sem skaðast ekki. Ef ekki væri fjölbreytni í erfðaefni birkis væri hætta á að einn skaðvaldur gæti jafnvel útrýmt birkiskógum á stórum svæðum.

Líffræðileg fjölbreytni á Íslandi

Ísland er eyja fjarri meginlöndum. Aðeins eru 10.000 ár frá síðasta jökulskeiði þegar landið var þakið ís. Stór hluti lífríkisins á sér því unga sögu sem endurspeglast í hlutfallslega fáum tegundum. Aftur á móti er fjölbreytileiki búsvæða mikill hérlendis, m.a. vegna áhrifa jökla og eldvirkni, og lítil samkeppni er á milli tegunda. Þetta hefur leitt mikils breytileika innan tegunda og þróunar einstakra vistkerfa hérlendis. Í Þingvallavatni finnast m.a. fjögur afbrigði bleikju, sem þróast hafa frá sömu tegundinni og mikinn breytileika er að finna í íslensku birki og víði.

Hnignun líffræðilegrar fjölbreytni

Jörðin gengur nú í gegnum tímabil fjöldaútdauða lífvera. Mörg hundruð til mörg þúsund tegundir deyja út á hverju ári og fjöldi tegunda er í útrýmingarhættu. Auk þess verður heimurinn stöðugt einsleitari þar sem vistkerfi hverfa og breytileiki innan tegunda minnkar.

Þessa hnignun má rekja að mestu leyti til umsvifa mannsins, með athöfnum okkar gröfum við smám saman undan þeim grunni sem framtíð okkar byggist á.

Hér á Íslandi, eins og annars staðar í heiminum, er talið að mesta ógnin við líffræðilega fjölbreytni sé loftslagsbreytingar, ósjálfbær nýting, eyðing og rýrnun búsvæða, mengun og ágengar framandi tegundir. Hlýnun sjávar vegna loftslagsbreytinga virðist til dæmis hafa valdið verulegri fækkun í íslenska lundastofninum á undanförnum áratugum og hann er nú í bráðri útrýmingarhættu, samkvæmt válista Náttúrfræðistofnunar Íslands. Ósjálfbær landnýting hefur valdið víðtækri gróður- og jarðvegseyðingu á Íslandi og með henni tapast líffræðileg fjölbreytni. Eyðing og rýrnun búsvæða hefur verið töluverð hérlendis. Framræsla mýra hefur meðal annars eyðilagt búsvæði margra votlendisfugla og verið nefnd sem einn af áhrifaþáttum þess að keldusvín, sem er votlendisfugl, hætti að verpa á Íslandi. Ágengar framandi lífverur eru skilgreindar í náttúruverndarlögum sem „framandi lífvera sem veldur eða líkleg er til að valda rýrnun líffræðilegrar fjölbreytni“. Meðal ágengra tegunda á Íslandi eru minkur og alaskalúpína. Báðar þessar tegundir hafa haft mikil áhrif á lífríki Íslands og valdið rýrnun á líffræðilegri fjölbreytni.

Tengsl líffræðilegrar fjölbreytni og loftslagsmála

Á alþjóðavettvangi hefur umræða um hnignun líffræðilegrar fjölbreytni verið ofarlega á baugi þótt hún hafi ekki verið eins áberandi og umræðan um loftlagsmál, áhrif loftlagsbreytinga og aðgerðir til að stemma stigum við þeim. Loftlagsbreytingar og hnignun líffræðilegrar fjölbreytni eru ein mest aðkallandi viðfangsefni samtímans og ekki er hægt að líta á þau sem aðskilin málefni. Þau eru nátengd og við verðum að vinna að þeim báðum samhliða. Á meðan að aðgerðir til að vernda og auka líffræðilega fjölbreytni, svo sem endurheimt votlendis, eru líklegar til að vinna einnig gegn loftslagsbreytingum. En fjöldi aðgerða gegn loftslagsbreytingum getur, ef ekki rétt er að þeim staðið, leitt til þess að líffræðileg fjölbreytni tapast. Mikil áhersla er til dæmis á alþjóðavísu á ræktun skóga til kolefnisbindingar en bent hefur verið á að það þurfi að standa rétt að ræktuninni til að hún valdi ekki hnignun á líffræðilegri fjölbreytni. Ef tegundaríkt mólendi sem er búsvæði fjölda fuglategunda er látið víkja fyrir einsleitum ræktuðum skógi erum við líklegast að binda kolefni er til lengri tíma en um leið erum við að tapa mikilli líffræðilegri fjölbreytni. Miklu vænlegra er að vinna að þessum markmiðum samhliða og velja til dæmis önnur svæði til skógræktar í nafni kolefnisbindingar.

Verndun líffræðilegrar fjölbreytni

Því ber að fagna að stjórnvöld séu að setja nýja stefnu um verndun líffræðilegrar fjölbreytni hér á landi og vonandi leiðir sú stefna til jákvæðra breytinga. Því eins og ég sagði hér að framan er líffræðileg fjölbreytni undirstaða tilveru okkar og framtíðar. Það er því mjög brýnt að vernda hana – eiginlega alveg nauðsynlegt.

Verndum líffræðilega fjölbreytni Schützen wir die Artenvielfalt Let's protect biodiversity Chrońmy różnorodność biologiczną Låt oss skydda den biologiska mångfalden

Árið 1992 var samningur Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni samþykktur á heimsráðstefnu um umhverfi og þróun í Rio de Janeiro í Brasilíu. In 1992, the United Nations Convention on Biological Diversity was adopted at the World Conference on Environment and Development in Rio de Janeiro, Brazil. Ísland undirritaði samninginn á ráðstefnunni, eins og flest önnur ríki heims, og hann tók gildi hér á landi árið 1994 . Iceland signed the agreement at the conference, like most other countries in the world, and it entered into force in Iceland in 1994. Samningurinn kveður á um að aðildarríki móti heildstæða stefnu um verndun líffræðilegrar fjölbreytni. The agreement stipulates that member states formulate a comprehensive strategy for the protection of biological diversity. Fyrsta stefna Íslands um líffræðilega fjölbreytni var samþykkt 2008. Iceland's first policy on biodiversity was approved in 2008. Nú er verið að endurskoða þessa stefnu og í samráðsgátt stjórnvalda má finna Grænbók um líffræðilega fjölbreytni íslenskra vistkerfa. This policy is currently being revised and in the government's consultation portal you can find a Green Book on the biological diversity of Icelandic ecosystems.

**Hvað er líffræðileg fjölbreytni? **

Með líffræðilegri fjölbreytni er ekki einungis átt við fjölda tegunda lífvera, heldur einnig þann breytileika sem er á milli einstaklinga innan tegunda og erfðaefni þeirra, sem og samfélögin og vistkerfin sem tegundirnar mynda. Biodiversity refers not only to the number of species of organisms, but also to the variation that exists between individuals within species and their genetic material, as well as the communities and ecosystems that species form.

Sem dæmi má nefna að líffræðileg fjölbreytni sumarbústaðalands liggur í fjölda tegunda plantna, dýra og annarra lífvera sem þar má finna, bæði ofanjarðar og neðan. For example, the biodiversity of a holiday home country lies in the number of species of plants, animals and other organisms that can be found there, both above and below ground. Því má nefnilega ekki gleyma að í handfylli af mold eru mörg þúsund tegundir lífvera. That is why we must not forget that in a handful of soil there are many thousands of species of organisms. Fjölbreytnin felst líka í breytileika milli einstaklinga innan tegunda, engir tveir túnfíflar á grasblettinum eru eins og ef erfðaefni þeirra væri einnig mismunur þar á milli. The diversity also lies in the variation between individuals within a species, no two dandelions on the patch of grass are the same as if their genetic material also differed between them. Líffræðileg fjölbreytni nær líka yfir breytileika í búsvæðum og vistkerfum innan sumarbústaðalandsins, þar er grasblettur fyrir framan húsið, birkikjarr á bak við og svo smá mýri í einu horninu. Biodiversity also covers the variation in habitats and ecosystems within the cottage country, there is a patch of grass in front of the house, a birch thicket behind and then a little bog in one corner. Allt er þetta hluti af líffræðilegri fjölbreytni. Í næsta sumarbústaðalandi er svo engin grasblettur heldur hefur mólendið fengið að halda sér með annars konar fjölbreytni. In the next summer cottage country, there is no patch of grass, but the peatland has been allowed to maintain itself with a different kind of variety. Fjölbreytni sumarbústaðasvæðisins í heild fer svo eftir fjölbreytni á milli og innan hvers sumarbústaðalands. The diversity of the holiday home area as a whole depends on the diversity between and within each holiday home country.

Það er því hægt að mæla fjölbreytni á mismunandi kvörðum, allt frá fjölbreytni innan ákveðinnar tegundar upp í fjölbreytni innan landa eða jafnvel fjölbreytni fyrir jörðina alla. It is therefore possible to measure diversity on different scales, from diversity within a specific species to diversity within countries or even diversity for the entire planet.

**Mikilvægi líffræðilegrar fjölbreytni** The importance of biological diversity

Líffræðileg fjölbreytni er mikilvæg. Biodiversity is important. Hún er í raun undirstaða tilveru okkar og framtíðar. It is really the foundation of our existence and future. Hún er forsenda heilbrigðra og starfhæfra vistkerfa og þar með þeirra gæða sem þau veita okkur, allt frá fæðu til hreins lofts og vatns. It is a prerequisite for healthy and functional ecosystems and thus the quality they provide us, from food to clean air and water. Samspil lífvera er margbreytilegt og flókið og ef ein eða fleiri lífverur hverfa getur það valdið röskun sem hefur miklar afleiðingar fyrir vistkerfið í heild. The interaction between organisms is varied and complex, and if one or more organisms disappear, it can cause a disturbance that has major consequences for the ecosystem as a whole.

Líffræðileg fjölbreytni er líka mikilvæg til að vistkerfi geti brugðist við breytingum eins og þurrkum, sjúkdómum og hlýnun. Biodiversity is also important for ecosystems to respond to changes such as drought, disease and warming. Meiri fjölbreytni í tegundum, eða í erfðaefni innan tegunda, eykur líkurnar á að inn á milli leynist einstaklingar sem þola þessar breytingar vel og viðhalda þannig virkni vistkerfisins. Greater diversity in species, or in genetic material within species, increases the probability that individuals who tolerate these changes will be hidden in between and thus maintain the functioning of the ecosystem. Ef fjölbreytnin er ekki til staðar er mun meiri hætta á að breytingar leiði til útdauða tegunda, röskunar á vistkerfum og taps á þeim gæðum sem náttúran færir okkur. If diversity is not present, there is a much greater risk that changes will lead to extinct species, disruption of ecosystems and loss of the quality that nature brings us.

Nýlegt dæmi frá Íslandi um mikilvægi líffræðilegrar fjölbreytni er þegar birkikemba, nýr landnemi á Íslandi, fór að valda skaða á birki. Rannsóknir sýna að mismunandi birkiafbrigði eða kvæmi eru misviðkvæm fyrir skaðvaldinum. Í ræktun er hægt að velja afbrigði sem þola birkikembuna betur og birkiskógar eru líklegri til að þola skaðvaldinn vegna þess að fjölbreytnin veldur því að innan um eru plöntur sem skaðast ekki. Ef ekki væri fjölbreytni í erfðaefni birkis væri hætta á að einn skaðvaldur gæti jafnvel útrýmt birkiskógum á stórum svæðum.

**Líffræðileg fjölbreytni á Íslandi**

Ísland er eyja fjarri meginlöndum. Aðeins eru 10.000 ár frá síðasta jökulskeiði þegar landið var þakið ís. Stór hluti lífríkisins á sér því unga sögu sem endurspeglast í hlutfallslega fáum tegundum. Aftur á móti er fjölbreytileiki búsvæða mikill hérlendis, m.a. vegna áhrifa jökla og eldvirkni, og lítil samkeppni er á milli tegunda. Þetta hefur leitt mikils breytileika innan tegunda og þróunar einstakra vistkerfa hérlendis. Í Þingvallavatni finnast m.a. fjögur afbrigði bleikju, sem þróast hafa frá sömu tegundinni og mikinn breytileika er að finna í íslensku birki og víði.

**Hnignun líffræðilegrar fjölbreytni**

Jörðin gengur nú í gegnum tímabil fjöldaútdauða lífvera. Mörg hundruð til mörg þúsund tegundir deyja út á hverju ári og fjöldi tegunda er í útrýmingarhættu. Auk þess verður heimurinn stöðugt einsleitari þar sem vistkerfi hverfa og breytileiki innan tegunda minnkar.

Þessa hnignun má rekja að mestu leyti til umsvifa mannsins, með athöfnum okkar gröfum við smám saman undan þeim grunni sem framtíð okkar byggist á.

Hér á Íslandi, eins og annars staðar í heiminum, er talið að mesta ógnin við líffræðilega fjölbreytni sé loftslagsbreytingar, ósjálfbær nýting, eyðing og rýrnun búsvæða, mengun og ágengar framandi tegundir. Hlýnun sjávar vegna loftslagsbreytinga virðist til dæmis hafa valdið verulegri fækkun í íslenska lundastofninum á undanförnum áratugum og hann er nú í bráðri útrýmingarhættu, samkvæmt válista Náttúrfræðistofnunar Íslands. Ósjálfbær landnýting hefur valdið víðtækri gróður- og jarðvegseyðingu á Íslandi og með henni tapast líffræðileg fjölbreytni. Eyðing og rýrnun búsvæða hefur verið töluverð hérlendis. Framræsla mýra hefur meðal annars eyðilagt búsvæði margra votlendisfugla og verið nefnd sem einn af áhrifaþáttum þess að keldusvín, sem er votlendisfugl, hætti að verpa á Íslandi. Ágengar framandi lífverur eru skilgreindar í náttúruverndarlögum sem „framandi lífvera sem veldur eða líkleg er til að valda rýrnun líffræðilegrar fjölbreytni“. Meðal ágengra tegunda á Íslandi eru minkur og alaskalúpína. Báðar þessar tegundir hafa haft mikil áhrif á lífríki Íslands og valdið rýrnun á líffræðilegri fjölbreytni.

**Tengsl líffræðilegrar fjölbreytni og loftslagsmála**

Á alþjóðavettvangi hefur umræða um hnignun líffræðilegrar fjölbreytni verið ofarlega á baugi þótt hún hafi ekki verið eins áberandi og umræðan um loftlagsmál, áhrif loftlagsbreytinga og aðgerðir til að stemma stigum við þeim. Loftlagsbreytingar og hnignun líffræðilegrar fjölbreytni eru ein mest aðkallandi viðfangsefni samtímans og ekki er hægt að líta á þau sem aðskilin málefni. Þau eru nátengd og við verðum að vinna að þeim báðum samhliða. Á meðan að aðgerðir til að vernda og auka líffræðilega fjölbreytni, svo sem endurheimt votlendis, eru líklegar til að vinna einnig gegn loftslagsbreytingum. En fjöldi aðgerða gegn loftslagsbreytingum getur, ef ekki rétt er að þeim staðið, leitt til þess að líffræðileg fjölbreytni tapast. Mikil áhersla er til dæmis á alþjóðavísu á ræktun skóga til kolefnisbindingar en bent hefur verið á að það þurfi að standa rétt að ræktuninni til að hún valdi ekki hnignun á líffræðilegri fjölbreytni. Ef tegundaríkt mólendi sem er búsvæði fjölda fuglategunda er látið víkja fyrir einsleitum ræktuðum skógi erum við líklegast að binda kolefni er til lengri tíma en um leið erum við að tapa mikilli líffræðilegri fjölbreytni. Miklu vænlegra er að vinna að þessum markmiðum samhliða og velja til dæmis önnur svæði til skógræktar í nafni kolefnisbindingar.

**Verndun líffræðilegrar fjölbreytni**