×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

image

Eating Out, 8- Áttundi hluti

Áttundi hluti.

Þjónn: Jæja, eruð þið búin að ákveða ykkur?

María: Já, ég ætla að fá baunasúpu til að byrja með.

Síðan vil ég fá steiktan kjúkling.

Þjónn: Það er vel valið.

Hvað með þig?

Pétur: Ég ætla að fá salat til að byrja með og síðan ætla ég að prófa spaghetti sérréttinn ykkar.

Þjónn: Má bjóða ykkur vín með matnum?

María: Já takk.

Vilt þú færa okkur hálfa flösku af rauðvíni hússins?

Þjónn: Hálf flaska af rauðvíni hússins er á leiðinni.

Ég kem líka með brauð handa ykkur.

Er eitthvað annað sem þið mynduð vilja?

María: Nei takk, við erum góð.

– En segðu mér Pétur, hvað gera foreldrar þínir þessa dagana?

Pétur: Pabbi minn er ennþá að vinna.

Mamma mín nýtur þess að vinna í garðinum.

María: Þau virðast bæði hafa nóg að gera.

Eru þau bæði við góða heilsu?

Pétur: Já þau eru það.

Hvað með foreldra þína?

María: Foreldrar mínir eru í heimsókn hjá ættingjum sínum á Austurlandi.

Pétur: Hvaða ættingjar eru það sem búa þar?

María: Bróðir mömmu og systir búa þar.

Við erum frekar náin.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE