Ellefti hluti.
Pétur: Finnst þér gaman í vinnunni þinni?
María: Eiginlega ekki.
Pétur: Af hverju finnst þér ekki gaman í vinnunni?
María: Ég hef ekki gaman af vinnunni minni því mér semur ekki við yfirmann minn.
Pétur: Af hverju semur ykkur ekki?
María: Okkur semur ekki því hann gefur mér ekki frelsið til að vinna vinnuna mína eins og ég vil vinna hana.
Pétur: Það getur verið erfitt.
Er það af því hann treystir þér ekki?
María: Það gæti verið.
Ég reyni að gera mitt besta en honum virðist ekki líka við mig.
Pétur: Hvernig veist þú það?
María: Sama hvað ég segi þá er hann ósammála.
Stundum veit hann lítið um hvernig starfið mitt virkar, en hann gagnrýnir mig samt.
Sama hvað ég geri þá er það ekki nógu gott fyrir hann.