×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

image

Brennu Njáls saga - stytt og einfölduð, 5. Ekkja Höskuldar hvetur Flosa til að hefna hans

5. Ekkja Höskuldar hvetur Flosa til að hefna hans

Hildigunnur vaknar og sér að Höskuldur er ekki hjá henni í rúminu. Hún fer út að leita að honum og finnur hann hálshöggvinn úti í garði. Hún heyrir að það hafi verið Njálssynir sem drápu hann.

„Þetta hefði kannski verið karlmannlegt verk,“ segir hún, „ef það hefði verið einn maður sem gerði þetta.“

Hún tekur skikkjuna af Höskuldi. Hún er öll í blóði.

Flosi, frændi hennar Hildigunnar, kemur í heimsókn.

„Æ, hvað þetta er sorglegt, Hildigunnur mín!“ segir hann.

„Já. Og hvað ætlar þú að gera í þessu máli?“ spyr Hildigunnur.

„Ég læt auðvitað dæma í þessu máli,“ svarar Flosi.

„Hah! Ætlarðu að láta dæma? Heldurðu að Höskuldur myndi ekki hafa

hefnt þín?“ spyr Hildigunnur.

„Hildigunnur mín, þú þarft nú ekki að vera svona vond. Það er ekkert annað sem ég get gert í þessari stöðu,“ segir Flosi.

Hildigunnur nær þá í skikkjuna sem hún hafði tekið af Höskuldi og leggur hana yfir Flosa. Skikkjan er enn full af blóði og blóðið fer allt yfir Flosa. „Þú gafst Höskuldi þessa skikkju og nú vil ég gefa þér hana aftur. Það er eins gott að þú

hefnir hans, annars ert þú enginn karlmaður.“

Flosi kastar skikkjunni af sér. „Mikið ógeðslega geturðu verið vond! Það að hefna Höskuldar myndi hafa hræðilegar afleiðingar fyrir okkur öll. Köld eru kvenna ráð!“

Flosi var svo reiður að andlitið hans fór frá því að vera rautt yfir í að vera hvítt yfir í að vera blátt.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE