×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

image

Silfursvanurinn, 8. Sigga er aftur byrjuð í ballett

8. Sigga er aftur byrjuð í ballett

Sigga klæðir sig í svartan bol og sokkabuxur og bindur utan um sig ballettpils. Hún setur hárið í hnút og skellir á sig rauðum varalit. Hún er að fara á ballettæfingu með balletthópnum sem nefnist Silfursvanirnir en þær eru allar yfir sextíu og fimm ára.

Sigga: Ég var í ballett í Þjóðleikhúsinu þegar ég var yngri, svo sá ég þetta auglýst í vetur og ákvað að skella mér. Við erum í tímum tvisvar í viku. Ég er aldrei hressari en eftir balletttíma, það er skemmtilegt og endurnærandi. Og svo er tónlistin í tímunum svo dásamleg. Verst hvað maður er orðinn feitur.

Við skellum okkur í bílinn og keyrum á ballettæfinguna í Skipholtinu. Við tekur stór hópur af svartklæddum ballerínum og æfingin hefst, þær eru að halda sýningu um helgina og þurfa að æfa vel innkomu og útgöngu af sviði. Sjálf hætti ég í ballett þegar ég var 16 ára og hef staðið í þeirri trú að minn ferill í ballett væri grafinn og gleymdur. Þegar ég fylgist með æfingunni finn ég fyrir tilhlökkun og óþreyju í líkamanum. Ég hlakka til að verða sjötug, þá ætla ég að mæta á ballettæfingar, setja á mig rauðan varalit, hitta vinina á hverjum degi í sundi og lesa allar bækurnar sem liggja á náttborðinu mínu.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE