×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

Íslenska - A1 - Ylhýra, Strætó – Text to read

Íslenska - A1 - Ylhýra, Strætó

Beginner 2 Icelandic lesson to practice reading

Start learning this lesson now

Strætó

„Strætó“ er stytting á orðinu „strætisvagn“. Svona „-ó“ endingar eru nokkuð algengar í íslensku, til dæmis er hægt að stytta orðið „kærasti/kærasta“ í „kæró“.

Allavega, á Íslandi eru hvorki til lestir né neðanjarðarlestir (það búa ekki nógu margir á Íslandi til þess að lestir borgi sig), þannig að besta leiðin til að ferðast á milli staða er með strætó. Það er mjög auðvelt að taka strætó í Reykjavík, það er líka hægt að taka strætó í mörgum bæjum úti á landi en þeir ferðast ekki jafn oft þar. Strætóar eru gulir á Íslandi.

Það er smá flókið að kaupa miða í strætó. Það er ekki hægt að mæta í strætó og borga með debetkorti, það kemur mörgum á óvart. Það er hægt að borga með peningum, en það er ekki hægt að fá pening til baka. Besta leiðin til að kaupa miða er að sækja strætó-appið og vera búinn að borga áður en maður fer upp í strætó.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE