×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

image

Íslenska - A1 - Ylhýra, Færeyjar

Færeyjar

Færeyjar eru eyjar sem eru á milli Íslands og Skotlands. Þær eru hluti af Danmörku. Það búa ekki margir í Færeyjum, bara fimmtíu þúsund manns.

Í Færeyjum talar fólk færeysku. Færeyska er mjög lík íslensku, en við Íslendingar skiljum Færeyinga ekki þegar þeir tala, bara þegar þeir skrifa. Við skiljum samt ekki allt sem þeir skrifa af því að þeir nota ekki alveg sömu orð. Stundum nota þeir dönsk orð og oft nota þeir orð sem Íslendingum finnst ótrúlega fyndin.

Svona hljómar íslenska:

Ég skil þig ekki.

Og svona hljómar færeyska:

Eg skilji teg ikki.

Mér finnst Færeyingar vera eins og litlu frændur okkar af því að þeir eru svo nálægt okkur. Það er gaman að tala við þá og við hugsum eins. En það eru samt ekki mikil samskipti á milli Íslands og Færeyja, ég veit ekki af hverju. Kannski af því að það kostar svo mikið að fljúga á milli.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE