Sonur minn hafði aldrei átt hund áður.
Svo fékk hann hund sem hét Máni.
Syni mínum þótti mjög vænt um Mána.
Máni var lítill, sætur hundur.
Honum hafði fundist gaman að hlaupa og leika sér þegar hann var hvolpur.
Sonur minn og Máni léku sér alltaf saman.
Mána þótti gaman að skíta sig út.
Svo sonur minn þreif hann oft og klippti langa, skítuga feldinn hans.
Máni lifði lengi.
Hann hafði verið fimmtán ára þegar hann dó.
(Sonurinn sagði frá)
Ég á eftir að fá mér hund á næsta ári.
Hundurinn minn á eftir að heita Máni.
Mér á eftir að þykja mjög vænt um Mána.
Hann á eftir að vera lítill, sætur hundur.
Máni á eftir að hlaupa og leika sér mikið meðan hann er hvolpur.
Við Máni eigum alltaf eftir að leika okkur saman.
Máni á líklega eftir að skíta sig mikið út.
Svo ég á eftir að þrífa hann oft og klippa langa, skítuga feldinn hans.
Máni á eftir að lifa lengi.
Hann á líklega eftir að vera um fimmtán ára gamall þegar hann deyr.
Spurningar:
1) Sonurinn hafði aldrei átt hund áður.
Hvað hafði sonurinn aldrei átt?
Sonurinn hafði aldrei átt hund áður.
2) Svo fékk hann hund sem heitir Máni.
Hvað heitir hundurinn?
Hundurinn heitir Máni.
3) Máni var lítill, sætur hundur.
Var Máni stór hundur?
Nei, Máni var ekki stór hundur.
Hann var lítill hundur.
4) Mána hafði fundist gaman að hlaupa og leika sér þegar að hann var hvolpur.
Hvað hafði Mána fundist gaman að gera?
Mána hafði fundist gaman að hlaupa og leika sér þegar að hann var hvolpur.
5) Máni og sonurinn eiga alltaf eftir að leika sér saman.
Á sonurinn eftir að leika við Mána?
Já, sonurinn og Máni eiga alltaf eftir að leika sér saman.
6) Máni á líklega eftir að skíta sig mikið út.
Hvað á Máni eftir að gera?
Máni á líklega eftir að skíta sig mikið út.
7) Sonurinn á oft eftir að þrífa Mána.
Á mamma sonarins oft eftir að þrífa Mána?
Nei, það á hún ekki eftir að gera.
Sonurinn á oft eftir að þrífa Mána.