×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

LingQ Mini Stories, 34 - Tommi var að fara út að borða með … – Text to read

LingQ Mini Stories, 34 - Tommi var að fara út að borða með vinum sínum

Beginner 2 Icelandic lesson to practice reading

Start learning this lesson now

Tommi var að fara út að borða kvöldmat með vinum sínum.

Þeir þurftu að ákveða veitingastað.

Tomma hefur alltaf fundist ítalskur matur bestur.

En vinum hans hefur alltaf fundist tælenskur matur betri en ítalskur matur.

Tommi ákvað að fá sér tælenskan mat í fyrsta skipti.

Tommi og vinir hans komu á veitingastaðinn.

Vinum Tomma finnst sterkur matur betri en Tomma.

Svo þeir pöntuðu sterkan, tælenskan mat.

Tommi pantaði salat.

Það var ekki eins sterkt og matur vina hans.

(Tommi segir söguna)

Nýlega hef ég mikið verið að fara út að borða kvöldmat með vinum mínum.

Við höfum verið að ákveða veitingastaði.

Mér hefur alltaf fundist ítalskur matur bestur.

En vinum mínum hefur alltaf fundist tælenskur matur betri en ítalskur matur.

Ég hef ákveðið að fá mér tælenskan mat í fyrsta skipti.

Ég og vinir mínir komum á veitingastaðinn.

Vinum mínum finnst sterkur matur betri en mér.

Þeir panta sterkan, tælenskan mat.

Ég er búinn að panta salat.

Það er ekki eins sterkt og matur vina minna.

Spurningar:

1) Tommi var að fara út að borða kvöldmat með vinum sínum.

Hvað var Tommi að gera með vinum sínum?

Hann var að fara út að borða kvöldmat með vinum sínum.

2) Þeir þurftu að ákveða veitingastað til að fara á. Hvað þurftu þeir að ákveða?

Þeir þurftu að ákveða veitingastað til að fara á.

3) Tomma hefur alltaf fundist ítalskur matur bestur.

Hvernig matur hefur Tomma alltaf fundist bestur?

Tomma hefur alltaf fundist ítalskur matur bestur.

4) Vinum hans hefur alltaf fundist tælenskur matur betri en ítalskur matur.

Hvernig matur hefur vinum hans alltaf fundist góður?

Vinum hans hefur alltaf fundist tælenskur matur góður.

5) Tommi hefur ákveðið að fá sér tælenskan mat.

Hvað ákvað Tommi að gera?

Tommi ákvað að fá sér tælenskan mat.

6) Vinum Tomma finnst sterkur matur betri en Tomma.

Hverjum finnst sterkur matur betri, Tomma eða vinum Tomma?

Vinum Tomma finnst sterkur matur betri en Tomma.

7) Vinir Tomma panta sterkan, tælenskan mat.

Hvað panta vinir Tomma?

Þeir panta sterkan, tælenskan mat.

8) Tommi er búinn að panta salat.

Hvað er Tommi búinn að panta á veitingastaðnum?

Hann er búinn að panta salat.

9) Salatið hans Tomma er ekki eins sterkt og matur vina hans.

Hvort er minna sterkt, salatið hans Tomma eða matur vina hans?

Salatið hans Tomma er ekki eins sterkt og matur vina hans.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE