×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

LingQ Mini Stories, 22 - Emmu líður ekki vel – Text to read

LingQ Mini Stories, 22 - Emmu líður ekki vel

Beginner 2 Icelandic lesson to practice reading

Start learning this lesson now

Emmu líður ekki vel.

Hún er með höfuðverk og er sár í kverkunum.

Hún hnerrar líka mikið.

Hún ákveður að fara til læknisins.

Hún segir lækninum hvernig henni líður.

Læknirinn segir Emmu að hún sé með kvef.

Emma biður lækninn um meðal.

Læknirinn segir að Emma þurfi ekki meðal við kvefi.

Læknirinn segir Emmu að sofa og drekka vatn í staðinn.

Emmu líður ekki betur þegar að hún fer frá lækninum.

(Emma segir söguna)

Mér leið ekki vel.

Ég var með höfuðverk og var sár í kverkunum.

Ég hnerraði líka mikið.

Ég ákvað að fara til læknisins.

Ég sagði lækninum hvernig mér leið.

Læknirinn sagði mér að ég væri með kvef.

Ég bað lækninn um meðal.

Læknirinn sagði að ég þyrfti ekki meðal við kvefi.

Læknirinn sagði mér að sofa og drekka vatn í staðinn.

Mér leið ekki betur þegar ég fór frá lækninum.

Spurningar:

1) Emmu líður ekki vel.

Líður Emmu vel?

Nei, henni líður ekki vel.

2) Emma er með höfuðverk og er sár í kverkunum.

Hvað er hún með?

Hún er með höfuðverk og er sár í kverkunum.

3) Emma hnerrar mikið.

Hvað er Emma að gera svona mikið?

Hún hnerrar mikið.

4) Emma ákveður að fara til læknisins.

Hvað ákveður Emma að gera?

Hún ákveður að fara til læknisins.

5) Emma segir lækninum hvernig henni líður.

Hvað segir hún lækninum?

Hún segir lækninum hvernig henni líður.

6) Læknirinn sagði Emmu að hún væri með kvef.

Hvað sagði læknirinn Emmu?

Læknirinn sagði henni að hún væri með kvef.

7) Læknirinn sagði að Emma þyrfti ekki meðal við kvefi.

Sagði læknirinn að Emma þyrfti meðal við kvefi?

Nei, læknirinn sagði að Emma þyrfti ekki meðal við kvefi.

8) Læknirinn sagði Emmu að sofa og drekka vatn í staðinn.

Hvað sagði læknirinn Emmu að gera í staðinn?

Læknirinn sagði Emmu að sofa og drekka vatn í staðinn.

9) Emmu leið ekki betur þegar að hún fór frá lækninum.

Leið Emmu betur þegar að hún fór frá lækninum?

Nei, Emmu leið ekki betur þegar að hún fór frá lækninum.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE