Hús og styttur
HELGA
Í Reykjavík eru margar styttur. Flestar eru af karlmönnum.
HELGA
Hér er ein. Maðurinn heitir Jón Sigurðsson.
XAVIER
Er þetta gömul stytta?
HELGA
Já, hún er gömul.
BETTINA
Er Jón Sigurðsson frægur maður?
HELGA
Já, mjög frægur stjórnmálamaður. Hann var frelsishetja.
HELGA
Þarna er falleg, gömul kirkja.
LOTTE
Hvað heitir hún?
HELGA
Þetta er Dómkirkjan í Reykjavík.
HELGA
Og þarna er fallegt, grátt hús.
TOM
Hvaða hús er þetta?
HELGA
Þetta er Alþingishúsið.