×

LingQ'yu daha iyi hale getirmek için çerezleri kullanıyoruz. Siteyi ziyaret ederek, bunu kabul edersiniz: çerez politikası.

Tulipop - Þættir, Kálhausaklúður – Okunacak Metin

Tulipop - Þættir, Kálhausaklúður

Başlangıç 2 Okuma pratiği için İzlandaca dersi

Bu dersi şimdi öğrenmeye başlayın

Kálhausaklúður

🎵

Alltaf er fjör á Tulipop, Tulipop.

Komdu nú með mér.

..ég skal sýna þér töfrana alla hér.

Búi, Gló, Freddi, Maddý og Barri tré.

Ég elska þennan stað.

🎵

Kálhausaklúður

-Ah, æi.

-Hæ, Búi.

-Oh.

-Hvað er títt?

-Sjáðu hvað kálhausarnir eru litlir. Ég hef reynt allt en þeir stækka samt ekkert. Svo litlir.

-Ah! Ég hef ráð við því. Tada!

-Hmm. Hvað er þetta?

-Þetta er nýja stækkunarseyðið mitt. Ég kom til að sjá hvort þú ættir eitthvað til að prófa það á, sem þú átt!

-Ömm.

-Það er eldfjallaaska úr Bláalónsvatni í því, efni sem lætur alla hluti vaxa, hratt.

-Heldurðu að það virki? Þú veist að seyðin þín eiga það til að klikka.

-Ekki í þetta sinn, Búi.

-Mmm, getum við prófað það bara á einum kálhaus og séð hvað gerist?

-Já, ég skal sko sanna það fyrir þér. Hmm, þetta er ekki nóg. Heheh. Úbbs! Ekkert mál. Því stærra, því betra, ekki rétt?

-Rétt. Já.

-Já. Það virkar.

-Sko, ég sagði að það myndi virka. Hoh! Ég ætla að finna fleira sem hægt er að prófa það á.

-Huh. Oh. Gló! Hoh!

-Já.

-Af hverju er kálhausinn minn með andlit?

-Mamma.

-Höh! Og hann talar.

-Mamma. Mamma.

-Vó. Þetta átti alls ekki að gerast.

-Já, einmitt. Láttu hann hætta.

-Búi, vertu rólegur. Ég laga þetta. Ég er með mótefni hérna einhvers staðar. Hmm, nei.

-Mamma. Stórt knús.

-Gló, flýttu þér.

-Ah, hér er það. Ó, nei, glóberjasulta.

-Nammi. Mmm. Hehe.

-Hihi, hvaðan komst þú?

-Ó, átti bara leið hjá. Vó, þetta er mjög stór kálhaus.

-Og hann er ennþá að stækka.

-Ég hef eflaust gleymt mótefninu heima. Freddi, viltu koma og hjálpa mér að finna það?

-Já, ég kem.

-Öm, en hvað á ég að gera?

-Eh, þú gætir reynt að vökva hann. Kannski skolar það seyðið af eða þynnir það út eða eitthvað. Komdu, Freddi.

-Allt í lagi.

-Mamma, mamm ég er þyrstur.

-Ömm, kem eftir smá stund.

-Ertu viss um að við finnum mótefnið? Búi tók þetta með kálhausinn ansi nærri sér. Hah?

-Já, auðvitað. Við finnum það örugglega strax. Eh, líklega.

-Vó!

-Ég vona að þetta virki.

-Mamma, meira, meira!

🎵Stór, stór, grænn og mjúkur.

Í vatnið er ég sjúkur.

Gusu ég vil. 🎵

-Ég kem

🎵 Vatnið út um allt. 🎵

-Meira, meira, meira

-Gjörðu svo vel.

🎵Gef mér góðan sopa.🎵

-Allt í lagi.

🎵Ég þarf marga dropa.

Vil stækka meir. 🎵

-Ha?

🎵Meir, meir, meir og meir. 🎵

-Ég veit nú ekki með það.

-Uhuhu.

-Þá það. Þá það.

-Meira, meira, meira, meira.

-Ég kem. Ég kem.

-Böh!

-Freddi. Hehehe.

-Nú kem ég og næ þér.

-Hehehe.

-Oh! Öh!

-Freddi.

-Meira, meira, meira.

-Hérna. Hérna er meira.

-Hmm, ekki hér. Freddi, sérð þú eitthvað þarna?

-Neibb, finn það ekki.

-Gef mér meira, meira.

-Allt í lagi, ég er að koma.

-Hmm, ekki hér, ekki...

-Ahaha! Vó! Hey, vúhú!

-Hihihi.

-Meira, meir, meira, meira.

-Get ekki haldið áfram.

-Meira, meira.

-Fann það. Hérna er það.

-Oh, hvað tafði ykkur eiginlega?

-Hefurðu komið heim til Glóar, eða? Það er sko ekki auðvelt að finna eitthvað þar.

-Meira, meira, meira.

-Lagaðu þetta bara, fljótt!

-Emm, við ættum að láta hann kyngja því. Hérna, Freddi.

-Öh, ég?

-Þú nærð upp.

-Þá það. Gjörðu svo vel, kálhaus. Opnaðu munninn. Hér kemur lestin. Tjú, tjú, tjú, tjú.

-Bjakk! Oj!

-Hmm, ef hann spýtir þessu bara, hvernig látum við þetta þá virka?

-Meira, meira, meira.

-Hann elskar sko þennan leik. Hehehe.

-Einmitt. Gló, fáðu mér mótefnið. Ég veit hvað skal gera. Jæja, eruð þið tilbúin?

-Tilbúin.

-Tími fyrir uppáhalds leikinn þinn, vinur minn.

-Meira, meira, hihihi, sturta aftur, gaman, gaman, o, ó, bless, bless, hihihi.

-Úff, loksins.

-Það var rosa góð hugmynd hjá þér að setja mótefnið í vökvunarkönnuna.

-Já og ég passa að hafa skammtinn réttan í næsta skipti.

-Það verður ekkert næsta skipti. Ég veit núna að ég vil hafa kálhausana mína nákvæmlega eins og þeir eru, litla og fallega.

-Hahaha.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE