×

Vi använder kakor för att göra LingQ bättre. Genom att besöka sajten, godkänner du vår cookie-policy.

Silfursvanurinn, 2. Fjölskylda Siggu – Text to read

Silfursvanurinn, 2. Fjölskylda Siggu

Mellannivå 1 Isländska lesson to practice reading

Börja lära dig lektionen nu

2. Fjölskylda Siggu

Sigga, eða öllu heldur Sigrid Josefsdóttir, er 77 ára gömul og býr á Jófríðarstaðavegi í Hafnarfirði með eiginmanni sínum Yngva Erni Guðmundssyni. Saman eiga þau þrjú börn og sjö barnabörn.

Faðir hennar var austurrískur en mamma íslensk og flutti fjölskyldan frá Vínarborg til Íslands eftir stríð þar sem faðir hennar gerðist fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Sigga og Yngvi hafa verið gift í meira en 60 ár. Hún hætti að vinna fyrir sex árum, en síðustu árin vann hún í Hafnarborg, listasafninu í Hafnarfirði. Hún elskar að hafa fallegt í kringum sig, enda vog í sólarstjörnumerkinu. Hún býður mér upp á kaffi í rósóttu stelli og smákökur.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE