Kafli 18
KAFLI XVIII
Litli prinsinn gekk um eyðimörkina og sá ekkert nema eitt, stakt blóm. Blóm með þrjú krónublöð, afskaplega tilkomulítið blóm...
-Góðan daginn, sagði litli prinsinn.
-Góðan daginn, sagði blómið.
-Hvar eru mennirnir? spurði litli prinsinn kurteisislega.
Blómið hafði einu sinni[KM35.1] séð hóp fólks fara hjá:
-Mennirnir? Þeir eru til, held ég, sex eða sjö af þeim. Ég hef ekki séð þá árum saman. En maður veit aldrei hvar þeir halda sig. Vindurinn færir þá úr stað. Þeir eru ekki með rætur og það truflar þá mikið.
-Vertu sælt, sagði litli prinsinn.
-Vertu sæll, sagði blómið.