×

Мы используем cookie-файлы, чтобы сделать работу LingQ лучше. Находясь на нашем сайте, вы соглашаетесь на наши правила обработки файлов «cookie».

Litli Prinsinn, Kafli 16 – Текст для чтения

Litli Prinsinn, Kafli 16

Средний 1 Урок исландского для практики чтения

Начать изучать этот урок прямо сейчас

Kafli 16

KAFLI XVI

Sjöunda plánetan var sem sagt Jörðin.

Jörðin er ekki bara hvaða pláneta sem er! Þar má telja hundrað og ellefu konunga (svo maður gleymi auðvitað ekki öllum smákonungunum), sjö þúsund landafræðinga, níu hundruð þúsund viðskiptamenn, sjö og hálfa milljón af fyllibyttum, þrjú hundruð og ellefu milljónir monthana, það er að segja um það bil tvo milljarða af fullorðnu fólki.

Til að gefa ykkur hugmynd um stærð jarðarinnar get ég sagt ykkur að áður en rafmagnið var uppgötvað þá hefði þurft að halda uppi, samanlagt í öllum sex byggðu heimsálfunum, heilum her af fjögur hundruð sextíu og tvö þúsund fimm hundruð og ellefu tendrurum götulampa.

Séð úr fjarlægð var þetta mikið sjónarspil. Hreyfingar þessa hers voru skipulagðar eins og í ballett eða í óperu. Fyrst kom röðin að tendrurunum í Nýja Sjálandi og Ástralíu. Eftir að hafa kveikt á lömpunum sínum fóru þeir að sofa. Svo kom röðin að tendrurunum í Kína og Síberíu. Síðan drógu þeir sig líka í hlé. Þá kom að tendrurunum í Rússlandi og Indlandi. Síðan að þeim í Afríku og Evrópu. Síðan að þeim sem bjuggu í Suður-Ameríku. Loks þeim sem bjuggu í Norður-Ameríku. Og aldrei rugluðust þeir hvað það varðaði í hvaða röð það átti að koma að þeim. Það var mikilfenglegt.

Það var bara eini tendrarinn á Norðurpólnum og starfsbróðir hans, sem var eini tendrarinn á Suðurpólnum, sem áhugalausir lifðu letilífi: þeir unnu bara tvisvar á ári.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE