×

Używamy ciasteczek, aby ulepszyć LingQ. Odwiedzając stronę wyrażasz zgodę na nasze polityka Cookie.

Tulipop - Þættir, Óskatré – Tekst do przeczytania

Tulipop - Þættir, Óskatré

Początkujący 2 lekcja z Islandzki do ćwiczenia czytania

Zacznij uczyć się tej lekcji już teraz

Óskatré

🎵

Alltaf er fjör á Tulipop, Tulipop.

Komdu nú með mér.

..ég sýna þér töfrana alltaf hér.

Búi, Gló, Freddi, Maddý og Barri tré.

Ég elska þennan stað.

🎵

Óskatré

-Vúhú! Hahaha. Jibbí. Vúhú.

-Vá! Ó, sjáið, en stórkostlegt. Hafið þið áður séð eitthvað svona undurfagurt?

-Vó! Vá!

-Sjáið þetta.

-Er þetta stjörnuhrap?

-Ú, eigum við að óska okkur Uggi og Spotti? Gerum það, Maddý, gerum það.

-Hvað sem þetta er þá stefnir það hingað. Komiði.

-Já, eltum það.

-Já!

-Allt í lagi, við komum.

-Bíðið eftir mér.

-Oh, ég er alltaf síðastur.

-Ó!

-Ó, sjáið. Þetta er ekki stjarna.

-Nei, þetta er fræ.

-Hvers konar fræ?

-Bíðið þið bara og sjáið.

-Vó! Vahá.

-Æðislegt. En ég vildi óska að þetta væri eplatré. Ég elska epli. Hvað?

-Hvernig?

-Hví?

-Hvar?

-Hehehe. Þetta er goðsögnin um norðurljósin. Sjáum nú til hvort ég muni vísuna.

Gjöf til ykkar norðurljósum frá.

Þau glitra og dansa himninum á.

Og nú eftir þúsund ára hlé,

Þá vex upp nýtt töfraóskatré.

🎵

Gjöf til ykkar norðurljósum frá.

Þau glitra og dansa himninum á.

Nú eftir þúsund ára hlé,

þá vex nýtt töfraóskatré.

Þetta er saga norðurljósanna.

Þau dansa og glitra meðal stjarnanna.

Svo litrík, dásamleg og skína svo skært.

Já, margt er náttúrinni fært.

🎵

-Já. Hahaha.

-Já!

-Við eigum okkar eigið töfraóskatré.

-Já!

-Ó. Ég veit, ég óska að ég geti flogið. Ah, hvað gerðist?

-Ah, já, ég hefði átt að útskýra. Þið fáið bara eina ósk hvert.

-Oh, það er í góðu lagi. Ég á núna endalausar birgðir af eplum. Amm!

-Hvers ætlar þú að óska þér, Búi?

-Hmm, ég er ekki viss.

-Þú ættir að óska þér að geta hlaupið hraðar. Þá myndirðu ekki verða alltaf síðastur af okkur.

-Já. Óskaðu þér hjóla í stað fóta. Þá yrði hann fljótari, ekki satt? Það er rétt. Það er rétt.

-Hmm, hjól í stað fóta.

-Bíddu,

-Ég er fyrstur!

-Bíddu.

-Þú ferð of hratt.

-Bíddu aðeins.

-Bíddu eftir okkur. Bíddu eftir okkur.

-Ég er fyrstur! Oh! Ég hefði líka átt að biðja um bremsur.

-Nei, hei, ég vil sko pottþétt alls ekki fá hjólafætur.

-Jæja. Ég veit hvað ég vil. Ég óska mér huliðskikkju.

-Ah, hvað? Hvert fór hún? Ha? Hvað?

-Vohó.

-Hey, hver var...

-Haha. Gló, hættu. Hahahaha.

-Haha. Besta ósk í heimi. Jæja, Búi, ertu búinn að ákveða þig?

-Hmm. Ég vil kannski... risa kálhaus.

-Oh!

-Mamma!

-Oh!

-Eða kannski ekki.

-Við vitum hvað við viljum, ekki satt? Það er rétt. Það er rétt. Ég óska þess að Uggi og Spotti geti talað.

-Prufa, prufa, einn, tveir, einn, tveir. Ehehe, það tókst. Það tókst. Við getum talað. Ormarnir geta talað. Sem þýðir... Við getum sungið. Sungið. Hahah.

-Uggi, Spotti, við getum sungið saman.

-Syng, syng, syng, syng, syng, syng....

-Maddý, láttu þá hætta.

-Uggi, Spotti, stopp, ssss.... hættið nú.

-Hættiði nú!

-Getið þið bara oh...

-Oh, maginn minn.

-Viljiði, oh...

-Gló! Prófaðu að henda huliðsskikkjunni yfir þá til að þagga niðri í þeim.

-Ó, góð hugmynd. Emm, hvar setti ég hana? Sér eitthvert ykkar skikkjuna mína?

-Ó, þetta er...

-Uggi, Spotti, suss!

-Æi, hvar er hún?

-Nú veit ég hvað ég vil. Ég óska þess að allt verði eins og áður.

-Syng, syng, syng, syngi, syng...

-Ah, ó takk, Búi

-Ó, herra Barri, fyrirgefðu. Þú fékkst ekki einu sinni að óska þér.

-Nei, en eftir að hafa séð hvað gerist þá er ég bara mjög feginn. Maður þarf að passa hvers maður óskar sér.

-Já, það er satt.

-Já.

-Mhm.

-Hey, þar sem við eigum öll þessi epli hér, hvað um að ég baki handa okkur.... risa eplaköku.

-Oh, ekki handa mér.

-Já takk, endilega.

-Hljómar vel.

-Ég fæ mér kannski smá.

Ég vildi óska að við ættum þeyttan rjóma með henni. Ó, nei ég meina...

-Ó, nei.

-Hehehe.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE