×

Używamy ciasteczek, aby ulepszyć LingQ. Odwiedzając stronę wyrażasz zgodę na nasze polityka Cookie.

Litli Prinsinn, Tileinkað – Text to read

Litli Prinsinn, Tileinkað

Średnio zaawansowany 1 Islandzki lesson to practice reading

Zacznij uczyć się tej lekcji już teraz

Tileinkað

TILEINKAÐ

LÉON WERTH.

Ég bið öll börn afsökunar á að hafa tileinkað bókina einhverjum fullorðnum. Ég hef hins vegar góða afsökun: þessi fullorðni maður er besti vinurinn sem ég á í öllum heiminum. Ég er líka með aðra afsökun: þessi fullorðni maður getur skilið allt, meira að segja bækur fyrir börn. Ég er með þriðju afsökunina: þessi maður býr í Frakklandi þar sem hann þarf bæði að þola kulda og hungur og hefur sannarlega þörf á huggun. Ef þessar afsakanir nægja ekki, vil ég tileinka þessa bók því barni sem þessi fullorðni maður var einu sinni. Allir fullorðnir byrjuðu á því að vera börn (þótt fáir þeirra muni eftir því). Ég leiðrétti því hér með tileinkunina:

TILEINKAÐ LÉON WERTH

ÞEGAR HANN VAR LÍTILL STRÁKUR

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE