×

Używamy ciasteczek, aby ulepszyć LingQ. Odwiedzając stronę wyrażasz zgodę na nasze polityka Cookie.

Leiðarvísir í ástamálum - Karlmenn, Mentun – Tekst do przeczytania

Leiðarvísir í ástamálum - Karlmenn, Mentun

Średnio zaawansowany 2 lekcja z Islandzki do ćwiczenia czytania

Zacznij uczyć się tej lekcji już teraz

Mentun

Menntun.

Menntaður maður og víðsýnn er ævinlega eftirlætisgoð kvenna, og honum veitist það auðvelt, að ná hylli þeirra. Konunni finnst það eðlilegt, að karlmaðurinn sé henni fremri að menntun, eigi síður en líkamlegu atgervi. Þess vegna getur heimskinginn — þótt fríður sé — aldrei gert sér von um, að standa hinum á sporði í ástamálum.

Þú þarft einnig að hafa ákveðnar skoðanir og eiga andleg áhugamál. Þér er eigi nóg að nota skoðanir Morgunblaðsins og Alþýðublaðsins — sem breytast stundum daglega —, heldur verður þú af eigin dómgreind að gera mun á réttu og röngu. Þú verður að temja þér rökrétta hugsun, því að djarfur hugsunarháttur er mikils virði í augum kvenfólksins.

Íþróttir eru fyrirtaks meðal til þess að læra að hugsa af viti. Glímur, sund og leikfimi stæla eigi aðeins vöðvana og glæða eftirtekt augans, en ala einnig af sér táp og vilja. Sálin og líkaminn eru tengd mjög nánum böndum, og sé annað hvort vanrækt vanrækist hvort tveggja.

Þú hefir nú heyrt, hversu menntun og víðsýni eru gott vopn í höndum karlmanna, þegar þeir ætla að vinna hinn rammgerva kastala: konuhjartað, en að endingu vil eg benda þér á, hvað mörgum hættir við að misbeita því. Það er t.d. ekki sjaldgæft í samkvæmum að heyra menn slá sig til riddara með hinum og þessum afrekssögum um sjálfa sig. Þetta hendir jafnvel hina gáfuðustu menn. En slíkar sögur missa marks. Þú mátt eigi auglýsa sjálfan þig. Og eigi mátt þú heldur vera of margorður, svo að konur geti einnig sagt sitt álit.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE