×

Χρησιμοποιούμε cookies για να βελτιώσουμε τη λειτουργία του LingQ. Επισκέπτοντας τον ιστότοπο, συμφωνείς στην πολιτική για τα cookies.

Hannesar saga Grásteins, 6. Það eina, sem er kátara en kátu… – Κείμενο για ανάγνωση

Hannesar saga Grásteins, 6. Það eina, sem er kátara en kátur kettlingur

Ενδιάμεσοι 1 μάθημα Ισλανδικά για εξάσκηση στην ανάγνωση

Άρχισε αυτό το μάθημα τώρα

6. Það eina, sem er kátara en kátur kettlingur, er:

Eftir Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur: Hannesar saga Grásteins, sjötta bók.

Það eina sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar.

Hannesar saga Grásteins, sjötta bók. Það eina sem er kátara en kátur kettlingur er kátir kettlingar.

Við lesum myndir, við lesum stuttan texta, við lesum langa sögu. Hannesar saga Grásteins, sönn saga, tuttugu bækur.

Freyjukettir, Norræn menning.

Sjötta bók. Það eina sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar.

Kettir eru hreinlegir og auðvelt að hafa þá í húsum inni. Þeir þurrka að vísu ekki af fótunum á sér áður en þeir hoppa upp í rúm, en þeir þvo sér örugglega rækilega, þótt mamma þeirra sé hætt að sinna uppeldinu.

Þvottur.

Bræðurnir Hannes Grásteinn og Surtarbrandur eru ánægðir með að hafa hvor annan. Þá geta þeir flogist á í fullkomnum kettlingaleik. Ef maður á aðeins einn kettling, þarf maður að vera duglegur að leika við hann. Leikþörfin er nær óþrjótandi.

Þeir leika sér.

En það er ótrúlegt hvað kettir geta slakað á -- og látið sér lynda, að smávaxnir eigendur séu að fullnýta sér þá.

Hjalti með Hannes.

Hannes og Surtarbrandur eiga pappakassahús, sem er alveg mátulegt fyrir þá. Meira að segja eru leynigöng úr einum kassa í annan.

Kassahús.

Þegar leikurinn nær hámarki, veltur venjulega húsið, samskeytin rifna og leynigöngin eru ekki lengur leyni neitt.

Þá mega krakkarnir eiga við viðgerðirnar. Það er ekki verk fyrir káta kettlinga.

Kassahús í klessu.

Þeir hafa ekki tíma til að eiga við viðgerðir. Þeir eru önnum kafnir við að veiða pappírsvöndul, sem dinglar í bandi. Þessi sígilda bréfmús veitir þrotlaust trimm.

(Endilega leyfið kettlingunum stundum að ná henni. Ef henni er alltaf kippt burt, gefast þeir upp.)

Bréfmús.

Auðvitað kemur að því að litlir kettlingar þreytast. Þeir hafa valið sér gamla barnavagninn í kjallaraganginum fyrir einkabæli. Kettlingarnir geta stokkið margfalda hæð sína nær fyrirhafnarlaust. Þarna geta þeir sofið tímunum saman á daginn eftir þreytandi leiki.

Þeir sofa hér.

Þegar Hannes og Surtarbrandur vakna, er ekki verið að fara sér að neinu óðslega: Staðið hægt á fætur, teygt úr hverjum vöðva og slakað á á eftir.

Þið ættuð að prófa að teygja ykkur svona innilega, þegar þið vaknið. Það er örugglega snjallt að slaka svona vel á, áður en hlaupið er af stað.

Þeir vakna.

Þeir bræður þykjast nú vera orðnir of stórir kettir til að fara í dallinn sinn. Þeir vilja frekar fara út í garð, grafa holu, gera svolítið, moka svo vandlega yfir, þar til engin lykt finnst. Þetta kemur engum við.

Pissað úti.

Nú koma þeir auga á fuglana sem fljúga tré úr tré, garð úr garði. Surtarbrandur mænir á eftir þeim með áfergju. Ævintýraþráin lætur kettlingana ekki í friði.

Í veiðihug.

Surtarbrandur stekkur upp í trén. Fuglarnir hafa vit á að leika sér ekki við ketti og fljúga yfir í annan húsagarð.

Og haldið þið að kettlingarnir hafi þá bara hætt að hugsa um það?

Ó, nei. Þeir stökkva á eftir þeim.

Eltingaleikurinn berst garð úr garði fyrr en varir. Nú halda þeim engin bönd. Í þeirra hugum er tilveran einn allsherjar meinlaus og hættulaus galsi.

Burt - á eftir fuglunum. En við vitum betur. Við kaupum ólar, sérstakar kattaólar og merkjum kettlingana kirfilega með heimilisfangi og símanúmeri. Ef þeir skyldu fara að þvælast langt brott, yrðu áreiðanlega einhverjir góðir krakkar til að koma þeim heim.

Og ef þeir stykkju fyrir bíl og dæju, gæti bílstjórinn að minnsta kosti látið okkur vita um slysið í stað þess að fleygja hræinu bara í næstu öskutunnu og við værum þá að kalla og leita og auglýsa í marga, marga óvissudaga.

Ól á Hannes.

Fyrst í stað þykir kettlingunum óþægilegt að hafa ólar um hálsinn. Þeir reyna árangurslaust að klóra þær af sér. Von bráðar hætta þeir að veita ólunum eftirtekt. Ómerktir fá þeir enda ekki að fara út. Brátt verður það gaman að fá ól, því þá vita þeir að það er verið að hleypa þeim út í frelsið.

Surtarbrandur klórar sér.

Ekki líður á löngu þar til kettlingarnir koma ólalausir inn. Einhverjir krakkar hafa stolið af þeim litlu laglegu ólunum. Við kaupum nýjar ólar í von um að þær verði látnar í friði. En allt fer á sömu leið: Þeir koma ólalausir inn á ný.

Ólar hverfa.

Nú er að koma vetur. Þá er gaman að fara á snjókornaveiðar í garðinum.

Gaman!

Snjór!

Ef hann tekur að hvessa, er alltaf hægt að smeygja sér inn um kjallaragluggann... fá sér mjólk og fisk inni í hlýjunni...

...og þvo sér hátt og lágt, þegar snjórinn byrjar að bráðna á feldinum.

Svo er alltaf hægt að hlýja sér á tánum á einhverri dúnsænginni.

Inn að éta.

Heimakærir kettlingar kúra hjá litlu eigendunum sínum á hverju kvöldi. Surtarbrandur malar mjög hátt, - eins og flestir kettir gera jú -

en Hannes malar svo lágt að varla heyrist.

Þeir mala sig - og börnin - í svefn. Þetta hljóð er svo róandi.

Kúra.

Mala.

Hér endar sjötta bók Hannesarsögu Grásteins, sjötta bók af tuttugu. Það eina sem er kátara en kátur kettlingur er kátir kettlingar.

Hannesar saga Grásteins, tuttugu bækur eftir Guðrúnu Kristínu

Fyrsta bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins

Önnur bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli

Þriðja bók: Hafri fer sér að voða, Eldra-Gúlla leiðist

Fjórða bók: Hannes Grásteinn og Surtarbrandur

Fimmta bók: Kettlingunum stolið

Sjötta bók: Dýna sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar

Sjöunda bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman

Áttunda bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum

Níunda bók: Surtarbrandur fer sér að voða

Tíunda bók: Hannes veiðikló

Ellefta bók. Hefur kötturinn níu líf?

Tólfta bók. Hannes flytur í nýtt hverfi

Þrettánda bók. Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara

Fjórtánda bók: Milli

Fimmtánda bók: Snjótittlingaveiðar

Sextánda bók: Nýi kettlingurinn

Sautjánda bók. Vor í lofti

Átjánda bók. Hannes fer í sveit

Nítjánda bók. Hvolparnir

Tuttugasta bók. Dánartilkynning

(þið munið að Hannesar saga er um sanna viðburði á kattarævi)

Útgefandi Freyjukettir, Norræn menning.

Mjá.

Hannesarsaga Grásteins. Tuttugu skemmtilegar bækur. Yndisleg, sönn, viðburðarík saga.

Mjá.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE