×

Χρησιμοποιούμε cookies για να βελτιώσουμε τη λειτουργία του LingQ. Επισκέπτοντας τον ιστότοπο, συμφωνείς στην πολιτική για τα cookies.

image

Rassfar í steini, 44. Banaslys löngu fyrir fornöld

44. Banaslys löngu fyrir fornöld

Sumir bæir láta ótrúlega lítið yfir sér þó þar hafi orðið heimssögulegir viðburðir. Svo er ástatt um þorpið Brunflo. Það var í Brunflo sem fyrsta skráða banaslys sögunnar átti sér stað og ekki sænsku sögunnar, ekki mannkynssögunnar heldur alheimssögunnar sjálfrar. Það geta vissulega hafa orðið banaslys fyrr, en þá hafa núlifandi menn bara ekkert frétt af þeim.

Það fannst torkennilegur dökkur smásteinn í kalksteinsplötu sem verið var að saga í steinsmiðjunni í Brunflo árið 1952. Þar störfuðu menn sem gjörþekktu hinn ljósa kalkstein og sáu strax að þetta var eitthvað skrýtið. Þeir fengu kunnáttumann til að athuga málið en hann var ekki nógu skarpur eða lærður, svo það var ekki fyrr en tuttugu og sjö árum síðar að í ljós kom hvað hér var á ferðinni. Þetta var nefnilega loftsteinn en ekki bara einhver loftsteinn, heldur langelsti loftsteinninn sem þá hafði fundist á allri jörðinni. Og hann fannst í Brunflo af öllum stöðum!

Nú skal játað að það er dálítið snúið að tala um aldur loftsteina. Að vissu leyti urðu þeir allir til á sama tíma, fyrir kannski 4,5 milljörðum ára þegar sólkerfið myndaðist og eru því eiginlega allir jafngamlir. Þegar talað er um gamlan loftstein er því átt við hve langt er um liðið síðan hann féll til jarðar. Menn eru eðlilega ekkert að velta fyrir sér þeim loftsteinum sem aldrei komu til jarðar. Þeir fáu loftsteinar sem komast niður á jörðina eyðast yfirleitt fljótt vegna jarðefnaáhrifa og veðrunar. Það eru víst bara þeir sem lenda í sérstökum kringumstæðum, til dæmis í jökli Suðurskautslandsins eða í heitum sandeyðimörkum sem ná einhverjum jarðneskum aldri. Og svo þeir loftsteinar sem steinrenna og verða að steingervingum, því steinar geta nefnilega orðið að steingervingum þó leikmönnum finnist það hálfgerður tvíverknaður. Um allt þetta vissu menn ekki mikið árið 1952. Það átti samt eftir að sýna sig að loftsteinsarðan í kalkplötunni var steingervingur; hún hafði lent í þannig skilyrðum að hún steinrann. Við skulum láta hið heimspekilega samsemdarvandamál sem hér er á ferð liggja milli hluta; er steingerður loftsteinn yfirleitt loftsteinn eða eitthvað annað o.s.frv.? Þegar að var gáð reyndist þessi loftsteinn í kalksteinsplötunni hafa fallið til jarðar fyrir svo sem 463 milljónum ára. Um þetta leyti höfðu ekki eldri loftsteinar fundist þó það hafi víst gerst síðan. Og þá kemur aftur að banaslysinu.

Við hliðina á þessum ævagamla loftsteini, og eiginlega undir honum, var lítill kolkrabbi sem hafði verið á lífi fyrir 463 milljónum ára og búið nálægt Brunflo. Það hafði viljað svo hrapallega til að loftsteinninn lenti svo gott sem beint á hausnum á kolkrabbanum sem auðvitað dauðrotaðist en steinrann svo þegar fram liðu stundir, ár og ármilljónir. [1]

Nú hefur margt sveitarfélagið gert sér mat úr minna og Brunflo hefði til dæmis getað ráðið sér myndhöggvara til þess að móta í stein mynd af kolkrabbanum og loftsteininum á því örlagaaugnabliki þegar leiðir þeirra lágu saman fyrir 463 milljónum ára. En þetta hefur hinn hógværi Brunflo-bær látið vera. Það er steinasafn í Brunflo og þar mun vera hægt að skoða á mynd steininn sem um hríð var elsti loftsteinn í heimi og orsakaði fyrsta skráða banaslys sögunnar.

[1] Þessi slysasaga byggir m.a. á Frans Erik Wickman: „Brunflo: verdens först fundne fossile stenmeteorit.“ Tidskriften VARV. Nr. 4 1982.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE