×

Χρησιμοποιούμε cookies για να βελτιώσουμε τη λειτουργία του LingQ. Επισκέπτοντας τον ιστότοπο, συμφωνείς στην πολιτική για τα cookies.

New Year Sale Έως και 50%
image

Föðurlaus sonur níu mæðra, Afmyndaður hjartavaöðvi í ítölsku klaustri

Afmyndaður hjartavaöðvi í ítölsku klaustri

Það eru ekki mikil tök á því heldur að meta hvort heilög Chiara elskaði Jesúm Krist með árangursríkum og fullnægjandi hætti. Hún fæddist árið1268 á Ítalíu og hóf feril sinn sem helg manneskja með því að vera sjálfri sér vond og ástunda meinlæti Guði til dýrðar eins og dýrlinga var siður. Þvert gegn vilja sínum - því veraldleg metorð ásældist hún síst af öllu - var hún gerð að abbadís í klaustri. Hún fastaði hvenær sem hún gat og í frístundum stóð hún berfætt úti og helst af öllu í snjó, en hann var því miður sjaldgæfur á Ítalíu þá sem nú. Hún þuldi Faðirvorið öllum stundum til þess að bæta fyrir þær syndir sem henni vannst þó aldrei tími til að drýgja.

Þar kom að árið 1308 kunngerði hún að hinn krossfesti Kristur byggi í hjarta sér. Þannig hafa ýmsir heittrúaðir tekið til orða fyrr og síðar, en sá var munurinn að heilög Chiara meinti þetta bókstaflega. Þegar hún dó nokkru síðar könnuðu skurðlæknar hjarta hennar. Það voru vissulega kaþólskir skurðlæknar því það var ekki var völ á öðruvísi skurðlæknum um þær mundir á Ítalíu, og viti menn, hjartað var miklu stærra en vera átti og í vefjum þess var greinilegur róðukross á stærð við fingur með vel þekkjanlegu Kristlíkneski. Það vottaði meira að segja fyrir síðusárinu og í hjartavöðvunum voru dökkir blettir eftir naglana í krossinum, sennilega ryðblettir. Einnig mótaði fyrir þyrnikórónunni svo ekki varð um villst. Þetta var á þeim tímum þegar eitt og annað gat gerst sem gerist ekki lengur og hinn krossfesti Kristur hafði greinilega valið sér hjarta hinnar guðhræddu Chiöru fyrir bústað í bókstaflegri merkingu. Þannig lagað hjarta er vafalaust illa til þess fallið að dæla blóði, en engu að síður rann blóð í æðum Chiöru árum saman eftir að hún dó og storknaði ekki en það var raunar alvanalegt í líkum dýrlinga. Hún var lýst heilög árið 1881, árið sem afi minn fæddist, og hjartað fræga mun enn vera til sýnis í klaustri í Montefalco á Ítalíu.

Þeir sem hafa gert sér ferð að skoða það segja að núorðið líkist það mest skorpnaðri smápylsu, en geti svo sem verið hvað sem er. Ekki örlar lengur á bólstað Krists í hjarta hennar sjö hundruð árum síðar, sem réttlætir þó engan veginn að dregið sé í efa að róðukross hafi sprottið í hjartavöðvum hennar á sínum tíma.

Rufus, A.: Magnificient corpses. Marolwe & Company. New York. 1999

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE