×

Χρησιμοποιούμε cookies για να βελτιώσουμε τη λειτουργία του LingQ. Επισκέπτοντας τον ιστότοπο, συμφωνείς στην πολιτική για τα cookies.

Leiðarvísir í ástamálum - Karlmenn, Hvernig vinna skal hyll… – Κείμενο για ανάγνωση

Leiðarvísir í ástamálum - Karlmenn, Hvernig vinna skal hylli kvenna

Ενδιάμεσοι 2 μάθημα Ισλανδικά για εξάσκηση στην ανάγνωση

Άρχισε αυτό το μάθημα τώρα

Hvernig vinna skal hylli kvenna

Hvernig vinna skal hylli kvenna.

Sannleikurinn er sá, að það er eigi eins auðvelt og þú kannt að hyggja, að vinna hylli kvenna. Eg á hér auðvitað eigi við þær konur, er rápa á kvöldin fram og aftur um göturnar í þeim tilgangi að kynnast karlmönnum, heldur þær, sem eru þess virði, að sóst sé eftir ást þeirra eða vináttu.

Að kynnast vændiskonum er engum erfiðleikum bundið. Til þess þarf venjulega eigi annað en peninga. En til þess að vinna hjarta heiðvirðrar konu, eru peningar lítils virði. Til þess þarf önnur meðul: góða sál og hreint hjartalag. Sá, sem eigi hefir góða sál og gott hjarta, getur eigi gert sér neina von um, að vinna ást heiðvirðrar konu, því að hún krefst ástar, umhyggju og tryggðar. Hún vill eiga sálina og hjartað óskipt, og með það fyrir augum flanar hún aldrei að ráði sínu.

Auk þessa þarf maðurinn að vera kurteis, viðmótsþýður og frjálslegur í framkomu. Þessir eiginleikar eru ómissandi hverjum þeim, sem komast vill í mjúkinn hjá kvenþjóðinni, og skal eg nú skýra mál mitt nokkru nánar.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE