Sammi og Bettý njóta þess að fara út að borða kvöldmat með vinum.
Þau njóta þess að fá sér eitt eða tvö vínglös með matnum þegar þau borða úti.
Af þeirri ástæðu er mikilvægt fyrir þau að hugsa út í hvernig þau eigi eftir að komast heim eftir kvöldmatinn.
Þau aka yfirleitt bílnum sínum á veitingastaðinn, eða heim til vina sinna, af því að það er of dýrt að taka leigubíl.
Þau ákveða yfirleitt fyrirfram hver eigi að keyra heim, úr því sá sem keyrir heim getur ekki fengið sér neitt vín.
Stundum vita þau að það verði erfitt að neita að drekka með hinum gestunum, til dæmis ef vinir eru að halda upp á atburð eins og afmælisdag.
Í þeim tilvikum þurfa þau að skipuleggja hlutina öðruvísi. Ein lausn er að fara með öðrum vinum sem eiga heima nálægt, þar á meðal einum sem samþykkir að drekka ekki.
Það er alltaf hentugt að eiga vini sem að drekka einfaldlega ekki yfir höfuð.
Það er alltaf mikil eftirspurn eftir þannig fólki sem bílstjórum.
Allra bestu aðstæðurnar eru þegar kvöldmatarboðið er innan göngufæris.
Því miður er það ekki oft raunin í stórborgum.
Við nutum þess að fara út að borða kvöldmat með vinum þegar við bjuggum í stórborginni.
Við nutum þess að fá okkur eitt eða tvö vínglös með matnum þegar við borðuðum úti.
Af þeirri ástæðu urðum við að hugsa út í hvernig við myndum komast heim eftir kvöldmatinn.
Við ókum yfirleitt bílnum okkar á veitingastaðinn, eða heim til vina okkar, af því það var of dýrt að taka leigubíl.
Við ákváðum alltaf fyrirfram hver ætti að keyra heim, úr því sá sem keyrði gat ekki fengið sér neitt vín.
Stundum vissum við að það yrði erfitt að neita að drekka með hinum gestunum, til dæmis ef vinir voru að halda upp á atburð eins og afmælisdag.
Í þeim tilvikum þurftum við að skipuleggja hlutina öðruvísi.
Ein lausn var að fara með öðrum vinum sem áttu heima nálægt, þar á meðal einum sem myndi samþykkja að drekka ekki.
Mér fannst hentugt að eiga vini sem drekka ekki yfir höfuð.
Það var alltaf mikil eftirspurn eftir þannig fólki sem bílstjórum.
Allra bestu aðstæðurnar voru þegar að kvöldmatarboðið var innan göngufæris.
Því miður var það ekki oft raunin í stórborgum.
Svo við fluttum í lítinn bæ og eyðum meiri tíma með nágrönnum okkar.
1. Sammi og Bettý njóta þess að fá sér eitt eða tvö glös af víni þegar þau borða úti.
Hve mörg glös af víni njóta þau að fá sér þegar þau borða úti?
Þau njóta þess að fá sér eitt eða tvö vínglös þegar þau borða úti.
2. Af þeirri ástæðu er mikilvægt fyrir þau að hugsa út í hvernig þau eigi eftir að komast heim eftir kvöldmatinn.
Hvað er mikilvægt fyrir Samma og Bettý að hugsa út í?
Það er mikilvægt fyrir þau að hugsa út í hvernig þau eigi eftir að komast heim eftir kvöldmatinn.
3. Þau aka yfirleitt bílnum sínum á veitingastaðinn, eða heim til vina sinna, af því það er of dýrt að taka leigubíl.
Af hverju taka þau ekki leigubíl?
Af því það er of dýrt að taka leigubíl.
4. Þau ákveða yfirleitt fyrirfram hver eigi að keyra heim.
Hvað ákveða þau fyrirfram?
Þau ákveða yfirleitt fyrirfram hver eigi að keyra heim.
1. Stundum vissum við að það yrði erfitt að neita að drekka með hinum gestunum.
Héldum við að það ætti eftir að verða auðvelt eða erfitt að neita að drekka með hinum gestunum?
Við vissum að það yrði erfitt að neita að drekka með hinum gestunum.
2. Í þeim tilvikum þurftum við að skipuleggja hlutina öðruvísi.
Hvað þurftum við að gera í þeim tilvikum?
Við þurftum að skipuleggja hlutina öðruvísi.
3. Mér fannst hentugt að eiga vini sem að drekka ekki yfir höfuð.
Hvernig vini fannst mér hentugt að eiga?
Mér fannst hentugt að eiga vini sem að drekka ekki yfir höfuð.
4. Þannig fólk var alltaf mjög eftirsótt fyrir að vera bílstjórar.
Fyrir hvað var mikil eftirspurn eftir þannig fólki?
Það var alltaf mikil eftirspurn eftir þannig fólki fyrir að vera bílstjórar.