Tröllaprump
Eftir að landnámsmenn settust að í Borgarfirði og annarsstaðar á Vesturlandi
hörfuðu tröllin upp til heiða og fundu sér hella í Hallmundarhrauni og víðar.
Sum tröll voru mönnunum afar reið og gerðu þeim allt til miska sem þau gátu.
Eitt þeirra var Depilrassa. Hélt hún til á Arnarvatnsheiði og var sérlega ill
viðureignar, stal bæði fénaði og mönnum og át hvort tveggja af bestu lyst.
Í Húsafelli bjó á þeim tíma maður að nafni Þorsteinn. Hefð var fyrir því að fara
síðsumars á heiðina og veiða silung til að eiga í búrinu yfir veturinn. Sögusagnir
um viðskotailla tröllkonu hræddu Þorstein ekki frá því að sækja fisk í hin gjöf
ulu fiskivötn. Hann fór því eitt sinn sem oftar til veiða og vinnumaður með
honum.
Eftir að hafa verið að í tvo daga og aflað vel, merktu þeir hreyfingu bak við
klett þar skammt frá og fannst sem einhver fylgdist með þeim. Þorsteinn kallaði:
„Sýndu þig ef þú átt við mig erindi.“
Eftir nokkra bið sáu þeir dökkleita veru koma undan klettinum og nálgast þá;
úfinn tröllastrák sem líktist mest stórskornum karlmanni. Þeir köstuðu á hann
kveðju og spurðu hvernig stæði á veru hans á heiðinni. Hann sagðist heita Dofri
og vera sonur Depilrössu og smalamanns sem hún tók fyrir mörgum árum og
hafði í helli sínum. „En nú er móðir mín búin að drepa og éta föður minn.
Skammt er þar til mín bíða sömu örlög, því hún finnur mér allt til foráttu alveg
eins og föður mínum áður en hún drap hann.“
Þorsteini leist vel á piltinn og bauð honum að fela sig hjá þeim og fylgja þeim
síðan til byggða. Dofri þakkaði fyrir sig og sagði: „Hún veit um veru ykkar hér og
ætlar sér að taka ykkur. Þið eruð stæðilegir menn svo varla leggur hún í að ráðast
á ykkur báða í einu. Þið skuluð standa þétt saman þegar hún kemur og hafa öxi
og hníf við belti. Hún hefur þann háttinn á að þykjast vingjarnleg og mun biðja
ykkur um skyr að borða. Skuluð þið veita henni mat en ekki skuluð þið leyfa
henni að þakka fyrir sig með kossi því að þá er hún vís til að bíta af hausinn.“
Er þeir höfðu falið Dofra í nálægum hellisskúta héldu Þorsteinn og vinnu
maður áfram veiðunum.
Skömmu síðar sáu þeir ókennilega veru nálgast. Þetta var tröllkerling, mikil
um sig og ófrýnileg. Gekk það eftir sem Dofri hafði sagt. Hún þóttist vinaleg og
bað um skyr að borða. Gáfu þeir henni og vildi hún fá að kyssa Þorstein fyrir
máltíðina en hann færðist undan og svaraði: „Samt er þakklætið og þó ekki komi
koss fyrir.“
Kerlingin tvísté nokkra stund, eins og hún væri óákveðin, en sneri svo snúð
ugt við og fór án þess að kveðja. Morguninn eftir héldu þeir Þorsteinn, vinnu
maður og Dofri til byggða með þrjá hestburði af fiski.
Árið eftir fóru þeir aftur til veiða, nema Dofri sem ekki vildi snúa aftur á heið
ina. Voru þeir nú fleiri saman og lét tröllkerlingin ekki sjá sig á meðan þeir
dvöldu við veiðarnar. Áður en farið var aftur til byggða reistu Þorsteinn og menn
hans lítinn en rammgerðan skála sem hægt var að hafast við í en þeir gerðu ráð
fyrir að veiða í gegnum ís um veturinn.
Þorsteinn og vinnumaður fóru svo á heiðina á miðjum útmánuðum þegar
vötnin hafði lagt. Komu þeir sér fyrir í skálanum og kveiktu upp í eldstónni til
að hita upp áður en þeir tóku til við veiðarnar. Veiðin gekk vel en frost var mik
ið og þeim varð kalt af útiverunni. Höfðu þeir þann háttinn á að skiptast á að
veiða og fara í skálann til að hlýja sér.
Síðdegis annan daginn, þegar Þorsteinn sneri aftur úr skálanum, sá hann að
Depilrassa var búin að ná vinnumanninum og drepa hann og stefndi stórstíg í átt
að honum. Greip hann á það ráð að fara aftur inn í skálann og loka hurðinni
með slagbrandi sem hann hélt við. Fann hann að tekið var á móti og hurðin hrist
og mátti hann hafa sig allan við svo slagbrandurinn gæfi sig ekki og hurðin hrykki
af hjörum. Næst var skálinn laminn að utan og rifið í grjóthleðsluna, en þar sem
skálinn var vel hlaðinn fannst tröllinu of tímafrekt að rífa grjótið niður.
Brátt heyrði Þorsteinn hark uppi á þakinu. Það byrgði fyrir reykháfinn og
buna helltist niður í eldstóna og kæfði eldinn. Bunan var svo mikil að hún flæddi
yfir gólfið og náði vökvinn Þorsteini í ökla. Því næst heyrðust drunur miklar og
fylgdi svo mikill óþefur og fýla að Þorsteinn var við það að hníga í ómegin. Ætl
aði hann að skessan hefði leyst vind og ætlaði að kæfa sig. Þegar hann var rétt að
því kominn að missa meðvitund kom hann auga á broddstaf sinn sem stóð upp
við vegginn. Stafurinn var með hvössum járnbroddi og notaður til að gera dorg
vakir í ísinn. Þorsteinn náði að grípa stafinn og skjögraðist að eldstónni. Um leið
og hann rak oddinn upp í reykháfinn og í afturenda skessunnar sagði hann:
„Hafðu þetta og nú berð þú nafn með rentu, ókindin þín.“
Skessan rak upp mikið öskur en var svifasein og tókst honum að reka brodd
stafinn þrisvar á kaf áður en hún stóð upp og ferskt loft streymdi niður reykháf
inn. Jafnaði hann sig fljótt og stikaði út um dyrnar með stafinn í hendi.
Depilrassa stóð við vegginn og lak úr henni blóðið. Hún horfði illilega á hann
og síðan broddstafinn og tók svo á rás út á ísilagt vatnið. Þorsteinn þóttist vita að
hún ætlaði að taka lík vinnumannsins með sér. Hann sá að ekki mátti af þessu
verða og hljóp á eftir henni, veifaði broddstafnum og hrópaði ókvæðisorð að
henni. Þegar hún varð þess vör breytti hún um stefnu og hvarf yfir hæðina. Þorsteinn fylgdi blóðslóðinni um hríð en ákvað svo að fara til baka. Mjög var af
honum dregið en honum fannst óráðlegt að dvelja um nóttina í skálanum.
Skynsamlegast væri að drífa sig til byggða með aflann og veita vinnumanni
sómasamlega útför.
Þorsteinn komst heim við illan leik og lá rúmfastur í nokkrar vikur. Eftir þetta
var hann mæðinn og úthaldslítill alla sína æfi. Af Depilrössu fréttist ekkert meira
og ekki er til þess vitað að hún hafi angrað ferðafólk á Arnarvatnsheiði eftir þetta.
Talið er að hún hafi drepist af blóðmissi í helli sínum.