×

Wir verwenden Cookies, um LingQ zu verbessern. Mit dem Besuch der Seite erklärst du dich einverstanden mit unseren Cookie-Richtlinien.

image

Föðurlaus sonur níu mæðra, Um þúfur og hlöss

Um þúfur og hlöss

Eftir að hafa gert grein fyrir stefnu lífsins og tilgangi er líklega rétt að benda á að litlir atburðir geta ráðið stórum örlögum í lífinu, en fólk sem hefur málshætti á hraðbergi orðar þetta svo, að litlar þúfur geti velt þungum hlössum.

Finnur marmelaði fékk til að mynda viðurnefni sitt af því að hann villtist einu sinni og aðeins einu sinni á marmelaðiskál og ávaxtagrautarskál við morgunverðarborð á Hótel Hornafirði. Hann var nývaknaður og tók marmelaðið fyrir grautinn og át fullan djúpan disk af því með skeiðinni og hafði rjómabland út á. Þessi smávægilegu mistök, gerð með rykuðum huga og loðinni sjón sem oft bagar mann á morgnana og aðeins í eitt einasta sinn, urðu til þess að hann fékk þetta viðurnefni og losnaði aldrei við það ævilangt. Alla tíð mótaði það hugmyndir manna um hann, gróf undan trausti á honum, rýrði stöðu hans á hjúskaparmarkaði, torveldaði framgang í atvinnulífinu, útilokaði þáttöku hans í stjórnmálum. Eflaust hefur það verið viðlíka tilvik sem Einari Benediktssyni var í huga þegar hann setti saman ljóðlínuna: „Hve iðrar margt líf eitt augnakast,/sem aldrei verður tekið til baka.“

Einar Benediktsson: Kvæðasafn. Bragi hf. Reykjavík 1964. S. 425

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE