×

Wir verwenden Cookies, um LingQ zu verbessern. Mit dem Besuch der Seite erklärst du dich einverstanden mit unseren Cookie-Richtlinien.

image

Brennu Njáls saga - stytt og einfölduð, 3. Ósætti eftir að öfund er sáð

3. Ósætti eftir að öfund er sáð

Höskuldur er vinsæll goði og margir vilja vera í goðorðinu hans. Einn annar goði sem heitir Mörður er mjög ósáttur við það og hann vill losa sig við Höskuld.

Planið hans Marðar er að koma upp ósætti milli Höskuldar og sona hans Njáls.

Mörður fer til Höskuldar og talar illa um Njálssyni. „Höskuldur, tókstu eftir því hvað Njálssynir gáfu þér lélegar gjafir? Þeir gáfu þér mjög lélegan hest og hlógu að þér. Veistu hvað ég held? Ég held að þeir séu öfundsjúkir út í goðorðið þitt. Skarphéðinn sagði það meira að segja á síðasta þingi.“

„Mörður, ekki vera að búa til leiðindi.“ segir Höskuldur.

„En það er satt.“ segir Mörður.

Nokkrum dögum síðar fer Mörður til Njálssona. „Strákar, vitið þið hvað ég heyrði? Ég heyrði að Höskuldur hafi ætlað að reyna að brenna Skarphéðinn inni síðasta sumar.“

„Hvað ertu að bulla, maður?“ spyrja Njálssynir.

„Nei, það er alveg satt.“ segir Mörður.

Næstu vikurnar heldur Mörður áfram að tala illa um Höskuld. Smám saman fara bræðurnir að trúa Merði. Þeir hætta að tala við Höskuld, þeir treysta honum ekki lengur.

Einn daginn segir Mörður svo: „Veistu hvað ég held, Skarphéðinn? Ég held að þið verðið að drepa Höskuld.“

„Já ætli þú hafir ekki rétt fyrir þér. Það er það eina í stöðunni.“ segir Skarphéðinn.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE