×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

Geimveran TAK, TAK og fiskarnir – Text to read

Geimveran TAK, TAK og fiskarnir

Beginner 2 Icelandic lesson to practice reading

Start learning this lesson now

TAK og fiskarnir

Tak og fiskarnir. Eftir Hjalta Bjarnason.

Tak og fiskarnir. Hjalti stýrir bátnum með utanborðsmótor. Freyjukettir, Norræn menning, önnur útgáfa 2010 og ISBN-númer. Flestar TAK-sagnanna voru í Stundinni okkar.

Fiskarnir 9. apríl 1978. Hjalti samdi Tak-sögurnar og teiknaði myndirnar á árunum 1975 til '79. Þá fimm til tíu ára. Og á myndinni: Tak og Geimi.

Köblfiskur og þrýstiloftsfiskur.

Nú sem stendur, er bíllinn, sem Tak bjó til, á botni árinnar. Þannig endaði sagan TAK og bíllinn. Tak var búinn að fá nóg!

En bíllinn drap ekki á sér niðri í vatninu. Bíllinn heldur áfram að pústa og menga ána. Fiskarnir koma upp á yfirborðið og kvarta við Tak yfir mengun:

Fiskarnir: -bðlelú, þú verður að losa okkur við bílinn bðlelú. Við erum alveg að kafna, Tak. Bðlelú.

Svo er hérna þýðing á ensku sem sjónvarpið lét gera.

Kafarageimveran fer ofan í ána að gá og segir Taki að bíllinn sé í gangi ennþá.

Fiskarnir: -bðlelú, það er gott að þú kemur bðlelú. Þá geturðu drepið á bílnum fyrir okkur bðlelúbðelú.

Tak biður kafara um að láta band í bílinn.

Lyftigeimveran togar bílinn upp. Bíllinn kemur upp á hvolfi.

Hundi Taks, Geima, dettur þá nokkuð í hug:

-Vúff, Tak, væri ekki vúff að nota bílinn sem bát, vúff?

Tak: -Jahá! Ég sný sætinu við og tek botninn úr bílnum.

En bílbáturinn fer ekkert áfram þótt, hjólin snúist.

Geimi: -Vúff. Bíllinn ekkert vúff áfram.

Takk tekur afturhjólin af og setur í staðinn tannhjól með spöðum.

Geimi: -Vúff, nú komumst við vúff áfram.

Púströrið er bogið og mengar enn ána.

Fiskarnir kvarta aftur.

-Bðlelú sjáðu Tak, bðlelú. Það er olíubrák á ánni bðlelúbðlelú.

Enn fer Tak að baksa við að eyða pústinu og lætur mótorinn pústa ofan í dall.

Tak: -Ég set tannkrem, talkúm, sápu, gúmmí, bráðið járn, gler - og nú vantar mig geimryk.

(Leikhljóð: klapp, klapp þegar smellir í bankara nornarinnar)

Tak: -Má ég fá geimryk úr teppinu þínu, fröken norn? Og Tak heldur áfram. -Hvers vegna heyrast svona smellir í teppinu þínu?

Nornin. -Þetta er sérstakt galdrateppi.

Svo tek ég strá úr fljúgandi kústinum mínum og hræri það út í pústið.

Hann athugaði ekki að hann eyðilagði sópinn með því.

Tak: -Svo set ég Mitt í dallinn og dínamít og vax, spritt og málningu. Síðast trjáseið og trjáblöð.

Tak ætlaði raunar að taka blöð af plöntunni Trank-í-sam-bang, en tók í þess stað af plöntunni Sömm, sem er kryddjurt.

(Leikhljóð: Blásið í blöðru alveg uppi við hljóðnemann)

Svo hleypir Tak rafstraumi á allt saman og tengir það við mótorinn. Nú myndast ofsalegur þrýstingur.

(Leikhljóð: Sprenging)

Svo kom sprenging, en út úr öllu saman kom tært vatn í stað pústsins. En - mótorinn sprakk líka.

Tak býr til fiskhreinsunarstöð, sem fiskarnir synda í gegnum. Og þeir koma ómengaðir út.

Fiskarnir: -Bðlelú! Þakka þér kærlega fyrir, Tak, bðlelú! Þetta er alveg fyrirtak hjá Taki bðlelú.

Tak ætlar nú að ferðast á fljúgandi sópinum sínum.

Tak: -Ha? Ég hlýt að hafa geymt hann of lengi. Hann hefur skemmst.

En Tak hafði sjálfur skemmt kústinn þegar hann tók eitt strá úr honum. Það var einmitt töfrastráið sem lét hann fljúga.

Tak: -Ég verð að fá nýjan kúst. Þú sagðir mér að svona sópar ættu að endast í minnst 220 þúsund geimár.

Nornin: -Þá verður þú að láta mig fá býsn af trjáseiði og fulla tunnu af mengun.

(Leikhljóð: Sog, sog, sog...)

Tak býr til mengunarsugu og safnar í hana allri menguninni sem er í ánni og fiskhreinsunarstöðinni.

Og Tak setur einnig trjáseið í stóran poka handa norninni.

(Sama leikhljóð, sog, sog, sog... heldur áfram)

Hann gleymir að slökkva á mengunarsugunni og gengur með hana í gangi gegnum skóginn til nornarinnar. Og á leiðinni sogast inn jurtir og fleira. Sem nornin þarf að nota í annað en kústa.

Tak fær nýjan fljúgandi sóp hjá norninni.

Fiskarnir: -BÐLELÚÚÚÚ! Húrra fyrir TakI! Húrra fyrir TakI, BÐLELÚÚÚÚ !

Húrra, húrra, húrra, húrra.

Þrjátíu Tak-sögur. Barn semur handa börnum.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE