×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

image

Samningur um réttindi fatlaðs fólks, 9. gr. Aðgengi.

9. gr. Aðgengi.

1. Aðildarríkin skulu gera viðeigandi ráðstafanir í því skyni að gera fötluðu fólki kleift að lifa sjálfstæðu lífi og taka fullan þátt á öllum sviðum lífsins, þ.e. ráðstafanir sem miða að því að tryggja fötluðu fólki aðgang til jafns við aðra að hinu efnislega umhverfi, að samgöngum, að upplýsingum og samskiptum, þar með talið upplýsinga- og samskiptatækni og kerfi þar að lútandi, og að annarri aðstöðu og þjónustu sem veitt er almenningi, bæði í þéttbýli og dreifbýli. Fyrrnefndar ráðstafanir, sem skulu meðal annars felast í því að staðreyna og útrýma hindrunum og tálmum sem hefta aðgengi, skulu meðal annars ná til:

a. bygginga, vega, samgangna og annarrar aðstöðu innan dyra sem utan, þar með talið skóla, íbúðarhúsnæðis, heilbrigðisþjónustu og vinnustaða,

b. upplýsinga- og samskiptaþjónustu og annarrar þjónustu, þar með talið rafrænnar þjónustu og neyðarþjónustu.

2. Samningsaðilar skulu og gera viðeigandi ráðstafanir til þess að:

a. þróa, útbreiða og fylgjast með því að lágmarkskröfur verði innleiddar og leiðbeiningar um aðgengi að aðstöðu og þjónustu, sem veitt er almenningi, séu uppfylltar,

b. tryggja að einkaaðilar, sem bjóða fram aðstöðu og þjónustu, sem veitt er almenningi, taki mið af hvers kyns aðgengi fyrir fatlað fólk,

c. tryggja fræðslu fyrir hagsmunaaðila um aðgengismál sem varða fatlað fólk,

d. tryggja að í byggingum og annarri aðstöðu, sem er almenningi opin, séu skilti með blindraletri og skilti á auðlesnu máli sett fram á þann hátt að þau séu auðlæsileg og auðskiljanleg fötluðu fólki,

e. láta í té ýmiss konar beina aðstoð og þjónustu milliliða, þar með talið fylgdarmanna, lesara og faglærðra táknmálstúlka, með það að markmiði að auðvelda aðgengi að byggingum og annarri aðstöðu sem almenningi er opin,

f. auka við að fatlað fólk fái notið annars konar viðeigandi aðstoðar og þjónustu sem tryggir því aðgang að upplýsingum,

g. auka við aðgang fatlaðs fólks að nýrri upplýsinga- og samskiptatækni og kerfum þar að lútandi, meðal annars Netinu,

h. efla hönnun, þróun, framleiðslu og dreifingu aðgengilegrar upplýsinga- og

i. samskiptatækni og kerfa þar að lútandi frá upphafi til þess að slík tækni og kerfi verði aðgengileg með sem minnstum tilkostnaði.